Innlent

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking í bæjarstjórn Akureyrar

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar. Oddvitar flokkanna, þeir Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Hermann Jón Tómasson, oddviti Samfylkingarinnar, tilkynntu þetta á Ráðhústorginu á Akureyri í dag. Kristján Þór verður áfram bæjarstjóri, að minnsta kosti fyrst um sinn, en Hermann Jón verður formaður bæjarráðs. Hann tekur svo væntanlega við embætti bæjarstjóra eftir þrjú ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×