Vilhjálmur Þ. og Björn Ingi funda tveir einir 31. maí 2006 19:07
Meirihlutaviðræðurnar í Reykjavík eru á hendi tveggja manna og funda þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Björn Ingi Hrafnsson tveir einir um málefnasamning og skiptingu embætta milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Líklegt þykir að flokkarnir skipti með sér formennsku í Orkuveitu Reykjavíkur en málefni eldri borgara verða þungamiðjan í málefnasamningi flokkanna.Þeir Vilhjálmur og Björn Ingi hittust í Ráðhúsinu klukkan hálfellefu í morgun og við biðum þeirra þegar þeir stigu út eftir nærri tveggja stunda fund. Vilhjálmur sagði að fundi loknum að málefnavinna gengi vel og menn ynnu hratt og örugglega, ekki væri undan neinu að kvarta. Björn Ingi sagði ekkert óvænt hafa komið upp á en eitt væri ljóst að spennandi tímar væru framundan fyrir borgarbúa.Það vakti athygli að þeir Vilhjálmur og Björn Ingi kjósa að vera tveir einir þegar þeir ganga frá skiptingu embætta og frá málefnasamningi milli flokkanna. Vilhjálmur segir að þeir tveir þurfi að sjálfsögðu að tala saman sem oddvitar flokkanna og það sé mjög eðlilegt. Hann leggi mikla áherslu á það að vera nánum og góðum samskiptum við Björn Inga. Fundur þeirra tveggja í morgun fór fram í fundarherbergi á þriðju hæð Ráðhússins. Þeir vildu ekkert gefa upp um nánari skiptingu embætta, en áður hefur verið greint frá. Það þykir þó blasa við að sjálfstæðismaðurinn Hanna Birna Kristjánsdóttir verði forseti borgarstjórnar. Sjálfstæðismenn munu að öllum líkindum einnig fá formennsku í skipulags- og byggingarnefnd og formennsku í Orkuveitu Reykjavíkur fyrstu tvö árin en víxla síðan á henni og formennsku yfir Faxaflóahöfnum við framsóknarmenn. Ekki er víst að borgarfulltrúi verði formaður Orkuveitunnar. Þeir Björn Ingi og Vilhjálmur segjast eiga von á því að allt verði þetta orðið klárt upp úr næstu helgi.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira