Skóflustunga tekin að nýrri sundmiðstöð í Hafnarfirði 9. maí 2006 17:29
Skóflustunga að nýrri sundmiðstöð í Hafnarfirði var tekin í dag. Formaður byggingaráðs bæjarins segir framkvæmdina mikla lyftistöng fyrir Hafnarfjarðarbæ. Það voru fulltrúar bæjarstjórnar, sundfélaganna í bænum, Fjarðar og Sundfélags Hafnarfjarðar, og merkisberar sundíþróttarinnar í Hafnarfirði sem munduðu skóflurnar á Völlum í dag, en svæðið þar sem sundmiðstöðin á að rísa er við hliðina á íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um er að ræða 50 metra almennings- og keppnissundlaug, 16 metra barna- og kennslulaug, auk heitra potta, rennisbrautar, líkamsræktarsalar og félagsaðstöðu fyrir SH og Fjörð. Áætlað er að taka fyrsta áfanga sundmiðstöðvarinnar í notkun í desember á næsta ári en síðari hlutann í maí 2008. Og verðið á herlegheitunum: einn milljarður króna. Við skóflustunguna afhenti Rannveig Rist, forstjóri Alcan sem rekur álverið í Straumsvík, sundfélögunum tveimur 500.000 króna styrk í tilefni tímamótanna. Ellý Erlingsdóttir, formaður skipulags- og byggingaráðs Hafnarfjarðar, var að vonum ánægð með daginn. Hún segir að undirbúningur framkvæmdarinnar hafi staðið lengi en nú sé ekkert að vanbúnaði að hefjast handa við verklega hlutann. Og Ellý segir að hin fyrirhugaða sundmiðstöð Hafnfirðinga muni án efa auka hróður sundmanna bæjarins enn frekar, en eins og kunnugt er er hinn frækni sundkappi Örn Arnarson uppalinn í Hafnarfirði.
Fréttir Innlent Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Sjá meira