Hundaólar sem gefa rafstuð 3. maí 2006 12:03 Úr myndasafni MYND/Vilhelm
Hægt er að gefa hundum rafstuð með þar til gerðum hálsólum sem verslun í Reykjavík hefur til sölu. Löglegt er að flytja ólarnar inn og selja, en ekki að nota þær. Ólarnar fást í Sportbúð Títans á Krókhálsi og hafa verið þar til sölu í tæpt ár. Um nokkrar gerðir er að ræða og að sögn Fannars Pálssonar, rekstrarstjóra verslunarinnar, eru ólarnar bæði notaðar til að þjálfa veiðihunda og sporna við hegðunarvandamálum hjá hundum. Á fjarstýringu sem fylgir ólunum eru tveir hnappar, annar þeirra til að gefa hljóðmerki sem kemur úr ólinni og er þá ætlað að hindra tiltekna hegðun hjá hundinum. Ef það ber ekki tilætlaðan árangur er hinn hnappurinn notaður, sem gefur hundinum rafstuð. Fannar segir að eftir örfá skipti verði nóg að gefa hljóðmerkið því hundurinn tengir það við rafstuðið, samanber bjölluhljómurinn og matargjöfin hjá hundum Pavlovs um árið. Karl Karlsson, dýralæknir hjá Umhverfisstofnun, segir að samkvæmt dýraverndunarlögum sé löglegt að flytja ólarnar inn og selja þær, en ólöglegt að nota þær. Hann segir að lagt hafi verið til við umhverfisráðuneytið að settar séu hömlur á innflutningi ólanna og auglýsingum á þeim. Spurður hvort segi megi að það sé löglegt en siðlaust að flytja ólarnar inn og selja þær segist Fannar ekki álíta svo. Hann bendir líka á að enginn agnúist út í rafmagnshestagirðingar, sem í sé miklu meiri straumur, og Fannar spyr á móti hvort þær séu einhverju skárri en umræddar ólar.
Fréttir Innlent Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira