Inga Þóra eina konan í undanúrslitum 28. apríl 2006 11:16
Inga Þóra, sem er sagnfræðingur að mennt, lagði Kristján Guy Burgess um síðir í skemmtilegri og æsispennandi viðureign þar úrslit réðust ekki fyrr en með lokaspurningunni. Þá hafði Inga Þóra þriggja stiga forystu og Kristján Guy lagði fimm stigu undir. Hann átti ekki svar við því hvar næstu vetrarólympíuleikarnir verða haldnir og lokatölur urðu því 20-12 (vel á minnst; næstu vetrarólympíuleikar verða haldnir í Vancouver í Kanada árið 2010). Inga Þóra varð þar með sú fjórða og síðasta til að tryggja sér sæti í 4 manna úrslitum. Áður höfðu Erlingur Sigurðarson, Jónas Örn Helgason og Illugi Jökulsson tryggt sér sæti í 4 manna úrslitum. Um keppendur í undanúrslitum Jónas Örn Helgasoner tvítugur verkfræðinemi og stúdent frá MH. Margir muna eftir honum úr Gettu betur þar sem hann keppti fyrir hönd MH í þrjú ár með eftirtektarverðum árangri. Helstu áhugasvið Jónasar eru tónlist, gamanþættir og partístand. Jónas Örn er í kór og spilar á gítar. Jónas Örn mætti til leiks í annarri umferð og lagði þá Hauk Harðarson viðskiptafræðinginn, en sá hafði einmitt lagt föður Jónasar Arnar, Helga Árnason skólastjóra Rimaskóla. Í 8 manna úrslitum lagði Jónas Örn síðan fyrrverandi keppinaut sinn úr Gettu betur, Steinþór Arnsteinsson í æsispennandi viðureign. Illugi Jökulssoner 45 ára fjölmiðlamaður með landspróf frá Hagaskóla frá árinu 1975. Helstu áhugamál sín segir hann vera skógrækt og húsasmíði en sérsviðin hinsvegar engin. Sjálfur gerir hann lítið úr fyrri afrekum á spurningasviðinu en hann rámar í að hann hafi staðið sig vel í spurningakeppni Þjóðviljans fyrir tuttugu árum síðan. En hér er að sjálfsögðu um hógværð að ræða því Illugi var eitt sinn dómari og spurningahöfundur fyrir Gettu betur - og í það starf veljast einvörðungi mestu gáfumenni. Illugu mætti til leiks í annarri umferð, 16 manna úrslitum. Þar lagði hann Ágúst Örn Gíslason, en naumlega þó, eftir að hafa fórnað forystunni fyrir peningaspurningu, sem hann gat síðan ekki svarað. Sigurinn í 8 manna úrslitum var öllu öruggari en þá lagði hann Snorra Sigurðsson 28-8 - sem er einhver mesti munur sem sést hefur í Meistaranum. Erlingur Sigurðarsoner 57 ára gamall Mývetningur, fyrrverandi kennari við MA og forstöðumaður Húss skáldsins. Erlingur tók kandídatspróf í íslensku, sagnfræði og kennslu fræði og helstu áhugamál hans eru allt mannlegt; hestar, hundar og músík. Erlingur hefur áður getið sér gott orð með þátttöku í ýmsum "minni háttar spurningakeppnum", eins og hann sjálfur orðaði það. Hann var í liði Karlakórsins Geysis sem unnið hefur þrefalt í vinsælli spurningakeppni Kvenfélagsins Baldursbrá og reyndi fyrir sér í spurningaþættinum vinsæla Viltu vinna milljón, sem sýndur var á Stöð 2 við miklar vinsældir fyrir nokkrum árum. Erlingur mætti, líkt og Jónas Örn og Illugi, til leiks í 16 manna úrslitum. Þar lagði hann Ólínu Þorvarðardóttur fyrrverandi alþingismann og skólameistara, með eftirminnilegum hætti, og ekki voru tilþrifin minni er hann gerði sér lítið fyrir og lagði annan alþingismann, Mörð Árnason, nú fyrir viku síðan í 8 manna úrslitum. Inga Þóra Ingvarsdóttirer 26 að aldri. Hún er stúdent frá MH, líkt og Jónas Örn og tók BA-próf í safnfræði frá HÍ 2002. Hún er með MA-próf í Propaganda, Persuasion and History frá University of Kent frá 2005. Inga Þóra hefur unnið mörg störf, m.a. á leikskóla, elliheimili, bókasafni, hjá Orkuveitu Reykjavíkur og sem bréfberi hjá Íslandspósti. Inga Þóra hefur mikinn áhuga á bókmenntum og les heims- og afþreyingarbókmenntir jöfnum höndum. Myndlist er henni einnig hugleikin, sem og skriftir, tónlist og kvikmyndir. Sérsviðin segir hún tengjast áhugamálum og menntum - eins og gefur að skilja. Inga Þóra tók þátt í Gettu betur fyrir hönd MH öll sín menntaskólaár. Inga Þóra er eini keppandinn í 4 manna úrslitum sem hefur verið með frá fyrstu umferð. Hún lagði Þorvald Þorvaldsson smið í allra fyrsta þættinum á öðrum degi jóla; í 16 manna úrslitum gerði hún sér lítið fyrir og lagði Friðbjörn Eirík Garðarson lögmann, sem sjálfur hafði lagt af velli Stefán Pálsson í fyrstu umferð og í 8 manna úrslitum lagði hún sem fyrr segir Kristján Guy Burgess. Undanúrslit í Meistaranum hefjast að viku liðinni; fimmtudaginn 4. maí. Frekari upplýsingar um MeistarannMeistarinn er alvöru spurningaþáttur, "klassískur spurningaþáttur," eins og stjórnandi þáttarins, Logi Bergmann hefur orðað það. Fréttaþulurinn Logi Bergmann er hreint enginn aukvisi þegar kemur að því að stýra spurningaþætti en hann var stjórnandi spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur við góðan orðstír í sjö ár. Meistarinn er öllum opinn. Markmiðið með þættinum var að leiða saman til spennandi einvígis skörpustu menn og konur landsins; jafnt þau sem þegar eru orðin landsmönnum að góðu kunn fyrir frækna framgöngu í spurningakeppnum, sem og aðra sem til stendur að uppgötva, laða fram á sjónvarsviðið. Allir sem náð hafa 20 aldursárum áttu þess kost að taka þátt. Efnt var til inntökuprófs - "Meistaraprófs" - í nóvember á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði og var þáttaka með mesta móti. Þeir hlutskörpustu í prófinu munu mæta til leiks í Meistaranum, ásamt nokkrum af nafntogaðri gáfumönnum og spurningahaukum landsins. Meistarinn á sér enga fyrirmyndir, er nýr og fjölbreyttur spurningaþáttur fyrir alla fjölskylduna, sem sameina mun allt það besta sem tíðkast hefur í vinsælum spurningaþáttum. Spennan verður í hávegum höfð og mun ekki einasta reyna á þekkingu keppenda heldur ekki síður kænsku þeirra og heppni. Spurningar eru almenns eðlis, um allt og ekkert, allt frá því að vera níþungar í að vera laufléttar. Reynir því ekki einasta á gáfur keppenda heldur ekki hvað síst á kænsku og heppni. Einn mikilvægasti liðurinn í keppninni er nefnilega sá að keppendur þurfa að velja flokka ýmist handa sér eða mótkeppanda sínum. Keppendur þurfa því að spreyta sig á flokkum sem mótkeppandi velur jafnt og hinum ýmsu mynd- og hljóðdæmum. Þurfi keppandi því að hafa heppnina sín megin og leika leikinn að kænsku til að reyna að koma andstæðingum sínum fyrir kattanef. Sá sem krýndur verður Meistarinn eftir að hafa lagt alla keppinauta sína í maður-á-mann útsláttarkeppni mun fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Í fyrstu umferð sitja tíu manns hjá. Að fyrstu umferð lokinni þurfa þau sextán sem eftir standa að berjast upp á líf og dauða til að komast áfram í næstu umferð, rétt eins og um bikarkeppni sé að ræða. Meistarinn er á dagskrá á fimmtudögum kl. 20.05 og þátturinn er endursýndur á laugardögum um kl. 16:00 og mánudögum kl. 22.55. Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV visis.is
Meistarinn Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Sjá meira