Línuhönnun hlaut umhverfisverðlaunin Kuðunginn 25. apríl 2006 22:31 Fulltrúar Línuhönnunar ásamt Sigríði Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra. Talið frá vinstri: Guðmundur Þorbjörnsson, Ríkharður Kristjánsson, umhverfisráðherra, Sigurður Ragnarsson, Helga Jóhanna Bjarnadóttir og Helgi Þór Ingason. MYND/Vísir
Það eru hreinar línur hjá ráðgjafa- og verkfræðistofunni Línuhönnun, en fyrirtækið hlaut í dag viðurkenningu umhverfisráðuneytisins, „Kuðunginn", fyrir að hafa umhverfissjónarmið að leiðarljósi í verkefnum sínum. Verðlaunin voru afhent í tengslum við hátíðar- og fræðslufund um endurnýtingar- og úrvinnslumál sem fram fór á Grand Hótel í tilefni Dags umhverfisins. Það var umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, sem afhenti forsvarsmönnum Línuhönnunar hinn forláta verðlaunagrip. Verkfræðistofan Línuhönnun var stofnuð árið 1979 en snemma á níunda áratugnum fór fyrirtækið einnig að bjóða upp á viðhaldsráðgjöf. Mörg þekkt hús hafa verið á meðal viðfangsefna Línuhönnunnar, þar á meðal aðalbygging Háskóla Íslands, Þjóðminjasafnið og Bessastaðir. Fyrr á þessu ári fékk Línuhönnun umhverfisvottun samkvæmt svokölluðum ISO 14.001 staðli en fyrirtæki með slíka vottun hefur farið í gegnum ákveðið ferli sem felur í sér stefnumótun á sviði umhverfismála og ítarlega skoðun á hvaða umhverfisáhrif starfsemi fyrirtækisins hefur. Kuðungurinn er veittur fyrirtækjum fyrir framlag þeirra til umhverfismála á liðnu ári og var viðurkenningin fyrst veitt árið 1994. Umhverfisráðherra skipar sérstaka úthlutunarnefnd árlega sem auglýsir eftir tilnefningum um fyrirtæki, sem vegna verka sinna og athafna er talið þess verðugt að hljóta Kuðunginn fyrir liðið ár. Nefndin fer yfir tilnefningarnar og heimsækir þau fyrirtæki sem hún telur helst koma til greina og sendir síðan tillögur sínar til ráðherra með rökstuðningi. Fulltrúar í nefndinni eru þrír, einn tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, annar af Samtökum atvinnulífsins og þann þriðja skipar umhverfisráðherra án tilnefningar. Verðlaunagripurinn er að sjálfsögðu kuðungur og er nýr hannaður ár hvert af nýjum listamanni. Það er Ólöf Erla Bjarnadóttir leirlistamaður sem hannaði Kuðunginn að þessu sinni. Kuðungshafinn fær auk þess, í eitt ár frá því að Kuðungurinn er veittur, að nota sérstakt merki sem listamaðurinn Kristín Þorkelsdóttir hannaði.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira