Illugi komst naumlega áfram 24. mars 2006 00:33
Illugi Jökulsson tryggði sér í kvöld sæti í 8 manna úrslitum í spurningaþættinum Meistaranum á Stöð 2. Þótt sigur Illuga hafi á endanum verið naumur, hafði hann framan af keppni mikla yfirburði yfir mótherja sínum Ágústi Erni Gíslasyni. Illugi var þá í banastuði og svaraði hverri spurningunni á fætur annarri, enda annálaður alfræðingur og víðlesin með afbrigðum. Þá gerði Illugi sér og lítið fyrir og vann sér inn peningapottinn, sem kominn var uppí heilar 150 þúsund krónur. Illugi fékk einnig þann kostinn, þegar forysta hans var kominn í heil tuttugu stig, að vinna sér inn ennþá meira fé með því að leggja heil fimmtán stig undir. Illugi sló til en átti ekki svar við spurningunni hvað tengingaspilið Lúdó kallast upprunalega, á indversku. Við það minnkaði forysta hans skyndilega niður í fimm stig og viðureignin á ný orðin spennandi. Svo fór líka að þegar ein spurning var eftir var Ágúst Örn skyndilega kominn með eins stigs forystu, 18-17. Illugi ákvað að reyna að jafna leikinn og lagði eitt stig undir síðustu spurningu sína, sem hann svo svaraði rangt. Af einskærum drengskap ákvað Ágúst Örn þá að leggja fimm stig undir síðustu spurningu sína og freista þess að sigra með stæl eða falla úr keppni með reisn. Ágúst Örn átti ekki svar við lokaspurningunni þannig að lokaúrslit urðu 16-13 Illuga í vil - sanngjörn úrslit þegar allt kemur til alls. En sigurinn gat þó vart verið naumari og ætti að kenna keppendum í framtíðinni að hugsa sig alvarlega um áður en þeir veðja öruggri forystu sinni. Illugi hefur þar með tryggt sér sæti í 8 manna úrslitum eins og áður segir og þokast nær því að verða krýndur Meistarinn og fá þar með 5 milljónir að sigurlaunum.Þeir sem áður höfðu tryggt sér sæti í 8 manna úrslitum eru Mörður Árnason, sem lagði Stefán Halldórsson í síðasta þætti, Erlingur Sigurðsson, sem lagði Ólínu Þorvðarardóttur, Steinþór H. Arnsteinsson, sem lagði Björn Guðbrand Jónsson, Kristján Guy Burgess, sem lagði Sævar Helga Bragason, Jónas Örn Helgason, sem lagði Hauk Harðarson og Snorri Sigurðsson sem lagði Önnu Pálu Sverrisdóttur. Síðasta viðureignin í 16 manna úrslitum fer fram að viku liðinni, fimmtudaginn 30. mars á Stöð 2. Þá mætast Inga Þóra Ingvarsdóttir sagnfræðingur og Friðbjörn Eiríkur Garðarsson lögmaður. Frekari upplýsingar um MeistarannMeistarinn er alvöru spurningaþáttur, "klassískur spurningaþátt," eins og stjórnandi þáttarins, Logi Bergmann hefur orðað það. Fréttaþulurinn Logi Bergmann er hreint enginn aukvisi þegar kemur að því að stýra spurningaþætti en hann var stjórnandi spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur við góðan orðstír í sjö ár. Meistarinn er öllum opinn. Markmiðið með þættinum var að leiða saman til spennandi einvígis skörpustu menn og konur landsins; jafnt þau sem þegar eru orðin landsmönnum að góðu kunn fyrir frækna framgöngu í spurningakeppnum, sem og aðra sem til stendur að uppgötva, laða fram á sjónvarsviðið. Allir sem náð hafa 20 aldursárum áttu þess kost að taka þátt. Efnt var til inntökuprófs - "Meistaraprófs" - í nóvember á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði og var þáttaka með mesta móti. Þeir hlutskörpustu í prófinu munu mæta til leiks í Meistaranum, ásamt nokkrum af nafntogaðri gáfumönnum og spurningahaukum lansins. Meistarinn á sér enga fyrirmyndir, er nýr og fjölbreyttur spurningaþáttur fyrir alla fjölskylduna, sem sameina mun allt það besta sem tíðkast hefur í vinsælum spurningaþáttum. Spennan verður í hávegum höfð og mun ekki einasta reyna á þekkingu keppenda heldur ekki síður kænsku þeirra og heppni. Spurningar eru almenns eðlis, um allt og ekkert, allt frá því að vera níþungar í að vera laufléttar. Reynir því ekki einasta á gáfur keppenda heldur ekki hvað síst á kænsku og heppni. Einn mikilvægasti liðurinn í keppninni er nefnilega sá að keppendur þurfa að velja flokka ýmist handa sér eða mótkeppanda sínum. Keppendur þurfa því að spreyta sig á flokkum sem mótkeppandi velur jafnt og hinum ýmsu mynd- og hljóðdæmum. Þurfi keppandi því að hafa heppnina sín megin og leika leikinn að kænsku til að reyna að koma andstæðingum sínum fyrir kattanef. Sá sem krýndur verður Meistarinn eftir að hafa lagt alla keppinauta sína í maður-á-mann útsláttarkeppni mun fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Í fyrstu umferð sitja tíu manns hjá. Að fyrstu umferð lokinni þurfa þau sextán sem eftir standa að berjast upp á líf og dauða til að komast áfram í næstu umferð, rétt eins og um bikarkeppni sé að ræða. Meistarinn er á dagskrá á fimmtudögum kl. 20 og þátturinn er endursýndur á laugardögum um kl. 16:00 og mánudögum kl. 22.55. Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV visis.is.
Meistarinn Mest lesið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Sjá meira