Innlent

Frú Vigdís merkasti Íslendingurinn

Frú Vigdís Finnbogadóttir.
Frú Vigdís Finnbogadóttir. MYND/Heiða

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er merkasti núlifandi Íslendingurinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hún hlaut tuttugu og níu prósent tilnefninga en næstur kom Davíð Oddsson, Seðlabankastjóri og fyrrum forsætisráðherra, með þrettán prósent.

Í þriðja til fimmta sæti voru söngkonan Björk, knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen og Ólafur Ragnar Grímsson forseti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×