Innlent

Nánast jafn margir karlar og konur skólastjórar

MYND/Stefán

Fjöldi kvenna sem gegna starfi skólastjóra í grunnskólum landsins er nánast orðinn jafn mikill og fjöldi karla. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þá eru grunnskólanemendur landsins, með annað móðurmál en íslensku, rúmlega sextán prósentum fleiri nú í vetur en á síðasta skólaári.

Hagstofan birti í dag ýmsar tölulegar upplýsingar varðandi grunnskóla landsins. Þar kemur meðal annars fram að skólarnir á yfirstandandi skólaári eru 177 talsins, eða einum færri en síðastliðinn vetur, og allir eru þeir einsetnir. Þetta er því fyrsta skólaárið sem hver einasti starfandi grunnskóli landsins er einsetinn.

Í tölum Hagfstofunnar kemur einnig fram að kennarastéttin er að eldast. Síðastliðið haust var tæplega þriðjungur allra kennara eldri en fimmtugt en til samanburðar voru aðeins tæplega tuttugu og fjögur prósent kennara komnir yfir fimmtugsaldurinn árið 1998. Flestir kennarar eru í aldurshópnum 40-49 ára.

Það kemur líklega fáum á óvart að konur eru í yfirgnæfandi meirihluta starfsmanna grunnskólanna, eða 81 prósent. Öllu athyglisverðara er að fjöldi kvenna sem gegna starfi skólastjóra í grunnskólum landsins er nánast orðinn jafn mikill og fjöldi karla. Af 180 starfandi skólastjórum eru konur 88 talsins, eða 49 prósent skólastjóra. Árið 1999 var þessi tala aðeins 34 prósent.

Þá vekur óneitanlega athygli að fjöldi þeirra grunnskólanemenda, sem hefur annað móðurmál en íslensku, fjölgaði um rúmlega sextán prósent síðastliðið haust samanborið við síðasta skólaár. Af rúmlega 44 þúsund grunnskólanemum eru tæplega 1600 sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Flestir þessara nemenda hafa pólsku sem móðurmál en þar á eftir kemur enska og norðurlandamálin.

Að lokum má geta þess að hlutfall kennara með kennsluréttindi er tæplega 87 prósent, og hefur ekki verið hærra síðan gagnasöfnun Hagstofunnar hófst árið 1997.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×