Nánast jafn margir karlar og konur skólastjórar 21. febrúar 2006 12:08 MYND/Stefán
Fjöldi kvenna sem gegna starfi skólastjóra í grunnskólum landsins er nánast orðinn jafn mikill og fjöldi karla. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þá eru grunnskólanemendur landsins, með annað móðurmál en íslensku, rúmlega sextán prósentum fleiri nú í vetur en á síðasta skólaári. Hagstofan birti í dag ýmsar tölulegar upplýsingar varðandi grunnskóla landsins. Þar kemur meðal annars fram að skólarnir á yfirstandandi skólaári eru 177 talsins, eða einum færri en síðastliðinn vetur, og allir eru þeir einsetnir. Þetta er því fyrsta skólaárið sem hver einasti starfandi grunnskóli landsins er einsetinn. Í tölum Hagfstofunnar kemur einnig fram að kennarastéttin er að eldast. Síðastliðið haust var tæplega þriðjungur allra kennara eldri en fimmtugt en til samanburðar voru aðeins tæplega tuttugu og fjögur prósent kennara komnir yfir fimmtugsaldurinn árið 1998. Flestir kennarar eru í aldurshópnum 40-49 ára. Það kemur líklega fáum á óvart að konur eru í yfirgnæfandi meirihluta starfsmanna grunnskólanna, eða 81 prósent. Öllu athyglisverðara er að fjöldi kvenna sem gegna starfi skólastjóra í grunnskólum landsins er nánast orðinn jafn mikill og fjöldi karla. Af 180 starfandi skólastjórum eru konur 88 talsins, eða 49 prósent skólastjóra. Árið 1999 var þessi tala aðeins 34 prósent. Þá vekur óneitanlega athygli að fjöldi þeirra grunnskólanemenda, sem hefur annað móðurmál en íslensku, fjölgaði um rúmlega sextán prósent síðastliðið haust samanborið við síðasta skólaár. Af rúmlega 44 þúsund grunnskólanemum eru tæplega 1600 sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Flestir þessara nemenda hafa pólsku sem móðurmál en þar á eftir kemur enska og norðurlandamálin. Að lokum má geta þess að hlutfall kennara með kennsluréttindi er tæplega 87 prósent, og hefur ekki verið hærra síðan gagnasöfnun Hagstofunnar hófst árið 1997.
Fréttir Innlent Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira