Óeðlilegur munur á kostnaðaráætlunum 20. febrúar 2006 20:05
Ægisdyr, samtök um jarðgöng milli lands og eyja, segja óeðlilegt að gífurlegur munur sé á skýrslu sem unnin var fyrir Vegagerðina nú fyrir skömmu og annarri skýrslu sem unnin var fyrir einu og hálfu ári. Í nýju skýrslunni er kostnaðurinn áætlaður milli 70 og 100 milljarðar en samkvæmt þeirri eldri yrði hann um helmingi lægri, eða rétt um 38 milljarðar. Í fréttatilkynningu frá samtökunum segir að í nýju skýrslunni sé reiknað með að jarðborar af dýrustu gerð séu notaðir til verksins, í stað ódýrari tækni sem notuð hefur verið við jarðgangagerð hér á landi. Einnig túlki nýja skýrslan jarðfræðiforsendur framkvæmdarinnar með afar svartsýnum hætti, og á allt annan hátt heldur en eldri skýrslan. Ekki náðist í vegamálastjóra vegna málsins. Í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá 2004 er áætlað að jarðgöng mættu kosta 30 milljarða króna án þess að kostnaður ríkissjóðs myndi aukast frá því sem núverandi samgöngur á sjó útheimta. Ljóst er að jarðgöng milli lands og eyja myndu stytta ferðatíma um helming, það tæki rösklega klukkutíma og þrjú kortér að keyra frá Eyjum til Reykjavíkur. Þá eru ótaldir fjármunir sem Vestmannaeyingar myndu spara í ferju- og flugmiða.
Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Fleiri fréttir Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Sjá meira