Alifuglar hér á landi verða lokaðir inni ef til fuglaflensu kemur 15. febrúar 2006 13:58 MYND/Hari
Reikna má með að alifuglar hér á landi verði lokaðir inni líkt og annars staðar á Norðurlöndum þegar og ef fuglaflensa berst hingað til lands. Sóttvarnalæknir segir að ekki verði gripið til sérstakra aðgerða nú umfram það sem þegar hefur verið gert eftir að fuglaflensa hefur greinst í Þýskalandi og Austurríki. Yfirvöld í bæði Þýskalandi og Austurríki hafa bæði staðfest að fuglaflensa hafi greinst í tveimur dauðum svönum á hvorum stað, en þetta eru fyrstu tilfelli í löndunum. Alls hefur því fuglaflensa greinst í tíu Evrópulöndum og hafa stjórnvöld í Þýskalandi, Danmörku og Svíþjóð gefið út tilskipanir um að loka alifugla sína inni í húsum. Haraldur Briem sótttvarnalæknir segir í ljósi þessara fregna að ekki verði gripið til sérstakra ráðstafana hér umfram það sem þegar hafi verið gert. Það sé búið að leggja upp áætlun um að fylgjast með ástandi farfugla þegar þeir komi hingað. Sýni verði tekin úr þeim og úr alifuglum til þess að komast að því hvort veirusmit hafi borist á milli þeirra. Fylgst sé með ástandinu og ef flensan bærist til landsins yrði gripið til sértækra ráðstafana sem yfirdýralæknir hafi umsjón með. Haraldur segir erfitt að spá fyrir um það hvenær fuglaflensan muni greinast hér og í hve miklu magni en hann býst við að gefin verði út sams konar tilskipun og í Þýskalandi og hinum norrænu ríkjunum um að alifuglar verði lokaðir inni. Reynt verði að koma í veg fyrir allan samgang milli alifugla og villtra fugla. Aðspurður hvort mikið sé um frjálsa alifugla á Íslandi segir Haraldur að svo sé ekki. Flestir séu í stórum kjúklingabúum sem séu lokuð en sums staðar séu þó landnámshænur sem gangi um frjálsar. Verið sé að kortleggja hvernig málum sé háttað. Ríkisstjórninn samþykkti í gær að veita 56 milljónir til fuglaflensuvarna og fer hluti þess fjár til landlæknisembættisins. En er þetta nóg fé? Haraldur segir að á þessari stundu sé það nóg en meta verði ástandið eftir því sem þróunin sýni og þá verði að taka á því þegar þar að komi.
Fréttir Innlent Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira