Telur Samfylkinguna og Sjálfstæðisflokkinn ekki eiga samleið 13. febrúar 2006 15:25 MYND/Valgarður
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar, telur að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn eigi ekki samleið í borgarstjórn. Hins vegar geti gömlu R-listaflokkarnir unnið saman áfram þar sem enginn málefnaágreiningur sé á milli þeirra. Dagur B. Eggertsson var gestur í Hádegisviðtalinu á NFS í dag, enn hann vann nokkuð afgerandi sigur í prókjöri Samfylkingarinnar í gær. Dagur hlaut 47 prósent atkvæða í í fyrsta sætið og leiðir því flokkinn í borgarstjórnarkosningunum í vor. Í viðtalinu sagði Dagur of snemmt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fagna sigri í kosningunum, en samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum fengi Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta, eða átta borgarstjórnarfulltrúa. Dagur telur flokkana sem mynduðu R-listann geta unnið saman eftir kosningarnar en sama sé ekki að segja um Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna. Sjálfstæðisflokkurinn hafi valið sér nagg- og nöldurstefnu í minnihluta í borginni og ekki sett fram neinar skýrar hugmyndir um hvað flokkurinn ætli að gera. Í sveitarfélögum þar sem sjálfstæðismenn séu við völd sé ekki lögð áhersla á velferð og draga hafi þurft flokkinn í eðlileg þjónusturverkefni gagnvart fjölskyldum, ungu fólki og yngstu kynslóðinni. Aðspurður hvort flokkarnir sem áður mynduðu R-listann myndu ná saman eftir kosningar ef sú staða kæmi upp segir Dagur að þeir myndu gera það málefnalega. Þá séu þó ákveðin hættumerki í því hversu lágur þröskuldur sé hjá nýrri forystu Framsóknarflokksins upp í ból til Sjálfstæðisflokksins.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira