Endanlegur framboðslisti ekki ákveðinn 7. febrúar 2006 12:43 f.v. Óskar Bergsson, Anna Kristinsdóttir og Björn Ingi Hrafnsson sóttust öll eftir 1. sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor. MYND/Pjetur Sigurðsson
Endanlegur framboðslisti Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor hefur ekki verið ákveðinn. Ef allir á listanum verða færðir upp um eitt sæti, er hugsanlegt að Gestur Kr. Gestsson, sem lenti í áttunda sæti í prófkjörinu, verði tilnefndur í fimmta sætið. Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi, sem bauð sig fram í 1. sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík á dögunum, tilkynnti í gær að hún tæki ekki sæti á listanum, en hún endaði í 2. sæti í prófkjörinu. Reglur prófkjörsins gerðu ráð fyrir því að kosningin væri bindandi í efstu tvö sætin en leiðbeinandi fyrir næstu fjögur. Einnig voru skilyrði um að jafnt kynjahlutfall þyrfti að vera í fjórum efstu sætunum. Óskar Bergsson, sem sóttist eftir fyrsta sæti á listanum ásamt Önnu og Birni Inga Hrafnssyni en endaði í því þriðja, sagðist í morgun ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann taki sæti á listanum en muni væntanlega gera það fyrir helgi. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar eru nú tveir kostir í stöðunni: Annars vegar að atkvæðin sem Anna fékk í prófkjörinu verði þurrkuð út og hinir frambjóðendurnir færist þá allir upp um eitt sæti á listanum. Sú hugmynd er uppi að Gestur Kr. Gestsson, sem varð í áttunda sæti í prófkjörinu, verði þá tilnefndur í fimmta sætið, væntanlega til að jafna kynjahlutföllin því annars myndu konur sitja í fjórum af sex efstu sætunum. Hinn möguleikinn er að uppstillingarnefnd tilnefni einhvern í annað sætið. Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, sagði í morgun að nefndin hafi ekki verið skipuð en nefndarskipanin muni liggja fyrir áður en langt um líður.
Fréttir Innlent Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira