Fær ekki greidda tryggingu vegna fjölskyldusögu 6. febrúar 2006 19:45
Kona á fimmtugsaldri, sem sótti um sjúkdómatryggingu hjá KB líf, fær ekki greidda tryggingu ef hún greinist með MS þar sem móðir hennar hefur strítt við sjúkdóminn. Formaður samtaka MS-sjúklinga segir þetta hneyksli. Það sé nógu sárt að glíma við ólæknandi sjúkdóm, þótt manns nánustu sé ekki refsað fyrir það. Fólk sem reykir er of feitt eða telst að öðru leyti lifa áhættusömu lífi getur átt von á því að þurfa að greiða sérstakt álag á iðgjaldið. Einnig falla þeir sjúkdómar ekki undir trygginguna sem hafa látið kræla á sér áður en viðkomandi einstaklingur sækir um tryggingu. Það ber þó nýrra við þegar fjölskyldusaga verður til þess að ákveðnir sjúkdómar falla ekki undir trygginguna. Sigurbjörg Ármannsdóttir, formaður MSf-félagsins, segir auk þess að engin haldbær vísindaleg rök styðji þessa framkomu. Örn Gústavssson,framkvæmdastjóri KB líftrygginga í dag,segir þetta gert samkvæmt kröfu frá endurtryggjanda félagsins sem sé einn sá stærsti á sínu sviði. Þetta geti einig átt við þegar hjarta- og æðasjúkdómar hafa greinst hjá öðrum nánum fjölskyldumeðlimum, eða brjóstakrabbamein. Þá eigi þetta við um MND-og MS-sjúkdóminn. Að baki slíkri sérmeðferð sé þó alltaf einstaklingsbundið mat starfsmanna og trúnaðarlæknis, háð aldri og ásigkomulagi einstaklingsins sem sæki um trygginguna. Örn Gústavsson vildi ekki viðtal vegna málsins. Sigurbjörg segist trúa því að heildarsamtök öryrkja beiti sér í málinu þar sem þetta beinist gegn fleiri hópum sjúklinga.
Fréttir Innlent Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Fleiri fréttir Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sjá meira