Söfnuðurinn vildi séra Sigurð 3. febrúar 2006 18:47 Mynd/Valgarður Gíslason
Safnaðarnefnd Íslenska safnaðarins í London segir þá ákvörðun að velja séra Sigurð Arnarson í embætti sendiráðsprests hafa verið rétta og í samræmi við vilja og þarfir safnaðarins. Nefndin sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í kjölfar dómsúrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur og fjölmiðlaumfjöllunar um að við skipun séra Sigurðar Arnarsonar, tengdasonar biskups, í embætti sendiráðsprests í London hafi stjórnsýslu- og jafnréttislög verið brotin. Í yfirlýsingunni segir einnig að meðal safnaðarfólks ríki mikil ánægja með störf séra Sigurðar og mislíki því mjög að sjá varla nafn séra Sigurðar nefnt í fjölmiðlum án þess að viðskeytið ,,tengdasonur biskups" fylgi þar á eftir. Í meðfylgjandi greinargerð frá safnaðarnefndinni segir enn fremur að söfnuðurinn hafi lagt sérstaka áherslu á að nýr prestur hefði menntun í sálgæslu vegna margvíslegra félagslegra aðstæðna Íslendinga í London. Í stefnu sækjanda hafi því hins vegar verið haldið fram að óþarflega mikil áhersla hafi verið lögð á sálgæsluhlutverk prests Íslendinga í London í auglýsingu Biskupsstofu um starfið. Þá segir safnaðarnefndin að hún fái ekki orða bundist þegar því var haldið fram í málflutningi með stefnunni að sr. Sigurður Arnarson sé síður hæfur en sá sem ekki varð fyrir valinu. Safnaðarnefndin hafi rætt málið ítarlega á sínum tíma og komist að þeirri niðurstöðu að sr. Sigurður Arnarson væri einstaklega hæfur til starfans og tæki hinum umsækjandanum fram. Þá andæfir safnaðarnefndin þeirri staðhæfingu að sr. Sigurður hafi notið þess óeðlilega að hann hafði gegnt embætti fyrir sr. Jón Aðalstein Baldvinsson, fyrrverandi safnaðarprest í London, um ellefu mánaða skeið. Hefði hann ekki verið hæfur til að gegna embættinu hefði það komið vel í ljós áður en ákvörðun um ráðningu var tekin. Niðurstaða héraðsdóms var að jafnréttislög hafi verið brotin þar sem Sigríður taldist jafn hæf og Sigurður. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í Skálholti, sem veitti embættið, segist hins vegar hafa veitt séra Sigurði Arnarsyni embættið á grundvelli hæfniskrafna. Í auglýsingu Biskupsstofu um starfið hafi verið lögð áhersla á sálgæsluhlutverk prests Íslendinga í London og Sigurður hafi lokið námi í sálgæslu. Vígslubiskupinn bætti því við að í dómsmálum að undanförnu hafi komið í ljós að varhugavert sé að sniðganga efnisatriði starfsauglýsinga.
Fréttir Innlent Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira