Stjórnvöld taka alþjóðlegar skuldbindingar sínar ekki alvarlega 25. janúar 2006 19:02 Mynd/Hari
Umhverfisverndarsinnar segja að íslensk stjórnvöld taki alþjóðlegar skuldbindingar sínar ekki alvarlega. Stækkun álversins í Straumsvík myndi klára mengunarkvóta Íslands, samkvæmt Kyoto-bókuninni. Landsvirkjun hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Alcan um stækkun álversins í Straumsvík. Miðað við áætlaða framleiðslu eftir stækkun verður mengunarkvóti Íslands samkvæmt Kyoto-skuldbindingum Íslands uppurinn. Formaður Náttúruverndarsamtakanna segir ljóst að stóriðjuáform stjórnvalda sýni að þau taki alþjóðaskuldbindingar sínar ekki alvarlega. Hann segir hæpið að biðja um auknar undanþágur eftir að núverandi Kyoto-skuldbingingar Íslands renna út árið 2012. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, tekur í svipaðan streng og segir það skammarlegt ef Íslendingar ætli að biðja um aukinn mengunarkvóta eftir 2012 þegar krafan í alþjóðasamfélaginu verði sú að dregið verði úr mengun. Að auki heldur Jón því fram að þjóðhagslegur ábati af álframleiðslu sé mjög lítill því inni í tölum um útflutningsverðmæti sé innflutningur sem notaður er til framleiðslu áls. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra segir of snemmt að draga ályktanir í málinu. Segir hún að Ísland muni standa við skuldbindingar sínar en óvitað sé hvað taki við eftir að þær renni út árið 2012.
Fréttir Innlent Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira