Innlent

Íbúar fjögurra sveitafélaga í Þingeyjasýslu samþykktu sameiningu

Íbúar fjögurra sveitafélaga í Þingeyjasýslu samþykktu sameiningu í gærkveldi og tekur sameiningin gildi við sveitarstjórnarkosningar í vor. Mestur var stuðningur við sameininguna á Húsavík þar sem fjórir af hverjum fimm greiddu atkvæði með sameiningu en minnstur var stuðningurinn Í Kelduneshreppi þar sem fimmtíu og fjögur prósent sögðu já. Í Öxarfjarðarhreppi samþykktu fimmtíu og sex prósent sameiningu og fimmtíu og níu prósent Í Raufarhafnarhreppi. Kosningaþátttaka var mismikil eftir stöðum. Í Húsavíkurbæ var hún tuttugu og átta prósent en mest áttatíu og eitt prósent í Kelduneshrepp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×