Innlent

Björg Jónsdóttir ÞH 321 landaði í dag fyrstu loðnu ársins í Neskaupstað

Ljósm: ©Vilhelm Gunnarsson

Í morgun kom Björg Jónsdóttir ÞH 321 með fyrstu loðnu ársins til Neskaupstaðar en Björg hafði verið á veiðum á loðnumiðunum norður af Langanesi. Þar hefur góð veiði verið síðustu daga en skipstjórar segja töluverða loðnu vera á miðunum.

Í fréttatilkynningu frá Síldarvinnslunni í Neskaupstað segir að ekki sé óalgengt að þorrinn og loðnan fylgist að. Þar segir jafnframt að mikið sé í húfi hjá þeim fyrirtækjum sem byggi afkomu sína á loðnustofninum, hundruð starfa séu í uppnámi og mörg byggðarlög eigi mikið undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×