Innlent

Krydd innkallað

Tvær kryddtegundir hafa verið innkallaðar eftir að í ljós kom að ólöglegt litarefni var að finna í þeim. Um er að ræða Rajah Mild Madras Curry Poweder og Rajah Hot Madras Curry Powder í hundrað gramma dósum.

Snefill af litarefninu Súdan er í dósum með síðasta söludegi 30. júní 2007, 30. júlí 2007 og 31. júlí 2007. Því hafa allar dósir verið innkallaðar úr búðum og frekari dreifing stöðvuð. 

Stjórnendur Karls K. Karlssonar ehf. sem flytur kryddið inn hvetja þá sem hafa keypt kryddið að skila dósunum sem allra fyrst inn til fyrirtækisins, að Skútuvogi 5 í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×