Gefur ekki upp hvort fleiri gætu tengst málinu 19. janúar 2006 22:56 MYND/Vísir
Meint fjármálamisferli á glasafrjóvgunardeild Landspítalans á árunum 2002 til 2004 er til rannsóknar hjá Ríkislögreglustjóra. Einum starfsmanni hefur verið vikið úr starfi vegna gruns um að hafa verið viðriðinn málið. Lögfræðingur Landspítalans vill ekki tjá sig um það hvort fleiri geti tengst málinu en ríflega hundrað skjólstæðingum deildarinnar hefur verið sent bréf þar sem óskað er eftir leyfi til að afhenda lögreglu nöfn þeirra vegna rannsókn málsins. Málið kom upp árið 2004 við reglubundið innra eftirlit á fjárreiðum glasafrjóvgunardeildar. Jóhannes Pálmason, lögfræðingur Landspítalans, segir málið talsvert umfangsmikið. Eftir skoðun Ríkisendurskoðunar á því í árslok 2004 var ákveðið að vísa málinu til lögreglu. Jóhannes kveðst ekki geta tjáð sig um það hversu háar upphæðir sé að ræða en játar því að um milljónir sé að ræða, en þó ekki tugir milljóna. Hann segist ekki vita til þess að skjólstæðingar spítalans hafi orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna málsins, en rannsókn muni líklega leiða það í ljós. Jóhannes kveðst ekki geta tjáð sig um það hvort fleiri en þeim starfsmanni sem sagt var upp séu viðriðnir málið. 5-10 manns störfuðu við deildina en Jóhannes vill ekki gefa upp hvaða starf umræddur aðili hafði með höndum, en upplýsir þó að hann var ekki yfirmaður. Þá segist hann ekki geta tjáð sig um það hvernig hann bar sig að við verknaðinn. Aðspurður hvernig málið standi núna segir Jóhannes að svör við beiðninni sem send var til skjólstæðinga glasafrjóvgunardeildar séu að berast og svörun hafi verið ágæt. Síðan fari málið áfram til lögreglu til frekari meðferðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Erik Menendez fær ekki reynslulausn Erlent Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erlent Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Erlent Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Innlent Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Fleiri fréttir Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi 83% fallinna almennir borgarar: „Allt sem er að gerast þarna ber einkenni þjóðarmorðs“ Næsti fasi í yfirtöku á Gasaströnd og Njálugleði Þrír laxar reyndust úr sjókví í Dýrafirði Allt stopp á lokametrunum Framboðið „verður að koma í ljós“ Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Rafmagnslaust í öllum Skagafirði Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Sjá meira