Sigrún Elsa gefur kost á sér í 2.-4. sætið 19. janúar 2006 09:45
Sigrún Elsa Smáradóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í annað til fjórða sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer 11. og 12. febrúar næstkomandi. Sigrún Elsa hefur verið varaborgarfulltrúi Reykjavíkurlistans síðast liðin tvö kjörtímabil og á sæti í menntaráði og leikskólaráði Reykjavíkurborgar. Ennfremur er Sigrún formaður samstarfsnefndar um lögreglumálefni, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur og formaður hverfisráðs Hlíða. Sigrún Elsa er matvælafræðingur að mennt. Í tilkynningu sem Sigrún Elsa sendi frá sér segir: Sigrún Elsa Smáradóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík 11.-12. febrúar og sækist eftir stuðningi í 2.-4. sæti á framboðslista flokksins í borgarstjórnarkosningunum. Sigrún Elsa hefur verið varaborgafulltrúi Reykjavíkurlistans sl. tvö kjörtímabil. Hún á sæti í menntaráði Reykjavíkur, áður í fræðsluráði og leikskólaráði, og var m.a. formaður starfshóps sem mótaði stefnu um gjaldfrjálsa vistun fyrir fimm ára börn í leikskólum sem verið er að hrinda í framkvæmd um þessar mundir. Sigrún er ennfremur formaður samstarfsnefndar um lögreglumálefni, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur og formaður hverfisráðs Hlíða. Hún hefur einnig átt sæti í umhverfis- og heilbrigðisnefnd og íþrótta- og tómstundaráði. Sigrún er matvælafræðingur og hefur meistaragráðu í viðskiptastjórnun (MBA). Hún hefur starfað sem markaðsstjóri hjá einkareknu fyrirtæki sl. tíu ár. En tók sér þó leyfi frá þeim störfum fyrir síðustu alþingiskosningar þegar hún starfaði sem pólitískur aðstoðarmaður Ingjbjargar Sólrúnar Gísladóttur. Á næsta kjörtímabili leggur Sigrún Elsa áherslu á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar, laga grunnskólann enn frekar að breyttum tímum og skapa þar aðstæður sem hvetja til einstaklingsmiðaðs náms. Hún vill stuðla að uppbyggingu Orkuveitu Reykjavíkur til hagsbóta fyrir borgarbúa og auka þar vægi umhverfisvænna áherslna við ákvarðanatöku. Með þessum og fjölmörgum öðrum aðgerðum vill Sigrún skapa hagstæð skilyrði bæði fyrir fyrirtæki og mannlíf í borginni.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Innlent „Við erum bara happí og heimilislaus“ Innlent Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli Innlent Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Erlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Fleiri fréttir Oscar einn af fimmtíu sem fær íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Óvenjulegt fyrir göngufólk og sannkallað Spánarveður Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Lokametrarnir á Alþingi og veðurblíða um allt land Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli „Við erum bara happí og heimilislaus“ Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi að nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Sjá meira