Nýskráðir bílar rúmum 52 prósentum fleiri í fyrra en árið 2004 16. janúar 2006 10:48 MYND/GVA
Íslendingar að og Lettar bera höfuð og herðar yfir aðrar Evrópuþjóðir þegar miðað er við aukningu á nýskráðum bílum á milli ára. Nýskráningar jukust um ríflega 52 prósent hér á landi í fyrra miðað við árið 2004 en nýskráðum bílum á Evrópska efnahagssvæðinu öllu fækkaði hins vegar lítillega milli ára. Samband evrópskra bílframleiðenda birti í dag tölur yfir nýskráða bíla í löndum Evrópusambandsins og EFTA-löndunum. Þar kemur fram að rúmlega 15,2 milljónir fólksbíla voru skráðar í löndunum á síðasta ári, þar af um tíu milljónir í Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu og Bretlandi. Hér á landi voru hins vegar 18.211 nýir fólksbílar skráðir í fyrra en þeir voru 11. 968 árið 2004. Það er 52,2 prósenta aukning frá fyrra ári. Lettar einir eru nálægt því að skáka Íslendingum á þessu sviði en nýskráningar bíla í Lettlandi jukust um 48,2 prósent á milli ára. Þar á eftir koma Danir með ríflega 20 prósenta aukningu og Eistar með átján prósent. Pólverjar skráðu hins vegar mun færri bíla í fyrra en árið 2004 og nam fækkunin 26 prósentum. Samband evróskra bílframleiðenda birtir líka yfirlit yfir það hvaða bíltegundir eru vinsælastar hjá Evrópubúum. Volkswagen trónir á toppnum með rúmlega 19 prósenta markaðshlutdeild, þar á eftir koma framleiðendur Peugeot og Citroën með 13,5 prósenta hlutdeild og framleiðendurnir Ford og General Motors hafa hvor um sig nærri ellefu prósenta hlutdeild á markaði.
Fréttir Innlent Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent Íris Helga neitar sök Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Sjálfstæðisflokkurinn feginn eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu „Auðvitað, við erum langbesti flokkurinn“ „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Sjálfstæðismenn á flugi Framinn þjófnaður á fjórum stöðum í dag Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Gæsluvarðhald fósturföðurins framlengt um tvær vikur Skálmöld hafði betur fyrir dómi Útstrikanir gætu haft áhrif en þær virka svona „Samfylkingin í Reykjavík er kvennagildra“ Kosning um sameiningu sveitarfélaganna ógild „Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi“ Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Selalaug og tilmæli um barnaafmæli gæluverkefni sem mætti slaufa Sigfríð Ingólfsdóttir er látin Ragna Bjarnadóttir nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Vara við fölsuðu Xanax í dreifingu „Auðvitað með ólíkindum að þetta fái að viðgangast“ Um þrjátíu þúsund kosið utankjörfundar Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Framboðin missi mögulega af leiðinni að hjarta kjósenda Hnífjafnt til hægri og vinstri Útboði lokið og ný líkbrennsla tekin í notkun við lok 2027 Sjá meira