Lækkanir vegna verðstríðs gengnar til baka 12. janúar 2006 23:06 MYND/Vísir
Verðbólga nú í janúar mælist 4,4% sem er meira en spáð hafði verið. Hagfræðingur hjá ASÍ segir ljóst að áhrif verðstríðs síðasta vor á matvöruverð sé gengið til baka og sér ekki forsendur fyrir þeim hækkunum sem orðið hafa. Neysluverðsvísitalan hækkaði um 0,32% frá því í desember sem er meira en spáð var. Matvæli og drykkjarföng hækkuðu um 2% á milli mánaða. Hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands segir ljóst að verðlækkanir eftir síðasta verðstríð lágvöruverslana síðasta vor séu að engu orðnar. Henný Hinz verkefnastjóri verðlagseftirlits hjá ASÍ segir lækkanirnar að öllu leyti gengnar til baka. Ef miðað er við neysluverðsvísitöluna er matvöruverð núna 1% lægra en í fyrra en á sama tíma hefur krónan styrkst um 8% sem ætti að skila sér í vöruverði til neytenda. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri, Bónusverslana, segir að ekki hafi dregið úr verðstríði lágvöruverslana. Og í sama streng tekur Árni Þór Freysteinsson, rekstrarstjóri Krónunnar. Þeir segja að hækkanirnar tengist birgjum og þeir fái ekkert við þær ráðið. Árni Þór segir að flestar þær vörur sem Krónan selji séu keyptar af innlendum birgjum. Auk þess var sérstakt umbúðagjald tekið upp síðustu áramót sem hafi áhrif. Að þeirra mati heldur samkeppni sem á markaðnum verðinu niðri. Henný telur hins vegar að hækkanirnar nú séu umfram það sem eðlilegt sé. Hún segir hækkun heildsöluverðs mjólkurvara og hækkun á kjöti vegna kjötskorts hafa áhrif á verð en fyrir utan það sé ekki innistæða fyrir þessum verðhækkunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira