Umfjöllun DV gagnast ekki þolendum 12. janúar 2006 20:30
Thelma Ásdísardóttir sem sagði sögu sína í bókinni Myndin af pabba sem kom út fyrir jólin segir umfjöllun DV um kynferðisglæpi ekki þjóna hagsmunum þolenda í slíkum málum. Mál þeirra systra hafi lent á síðum blaðanna þegar þau voru til meðferðar í réttarkerfinu og það hafi aukið á vanlíðan þeirra og stuðlað að einelti. Fara verði varlega í allri umfjöllun um þessi mál. Það leggst ekki vel í Thelmu Ásdísardóttur að nafn hennar skuli dregið inn í umræðu um DV eins og gert hefur verið á síðustu dögum. "Mér finnst svolítið skrýtið að Jónas Kristjánsson skuli eigna sér heiðurinn af því að við Gerður Kristný fórum í að skrifa þessa bók af því að mér finnst hann ekki eiga neitt í því, eða umfjöllun DV," segir Thelma. "Það er náttúrulega bara mín vinna, þrotlaus vinna hjá Stígamótum í mörg, mörg ár og hugrekki þeirra kvenna sem hafa hjálpað mér og komið mér á þann stað að ég var tilbúinn í að fara að skrifa þessa bók með Gerði, það er náttúrulega Gerður sem skrifaði hana. Umfjöllun um kynferðisofbeldi er jákvæð en það verður að passa hvernig það er gert. Ég get ekki tekið undir að umfjöllun DV um þessi mál hafi kvatt mig til að fara út í að segja mína sögu sem Gerður Kristný skrifaði." Og um efnistök DV í umfjöllun um kynferðisbrotamál segir Thelma. "Ég verð að viðurkenna að ég er ekki mjög dugleg að lesa DV. Þetta er yfirleitt í einhverjum æsifréttastíl og ég set oft spurningarmerki við það hver tilgangurinn er, hvort það er verið að hjálpa þolendum kynferðisofbeldis, eða hvað er verið að ná fram með þessum fréttum." Hvernig er það fyrir þolendur kynferðisbrota að lenda inni í slíkri umfjöllun. "Þegar ég var barn kom mál okkar systra nokkrum sinnum á forsíður blðanna eins og Dv er að gera núna. Þegar ég var í þessari stöðu og upplifa það að það eina sem skilaði sér til mín var að ég lenti í auknu einelti í skóla. Þetta vakti athygli á mínum aðstæðum og varð til að það var hrópað meira á eftir mér." Thelma segir að það megi þó ekki gleymast að dómstóll götunnar sé kannski jafn harður og raun ber vitni þar sem dómskerfið sé ekki að standa sig. "Af hverju er Ísland statt þar í dag að dómstóll götunnar þarf að draga fram þessa menn. Ég set svolitla spurningu við það hvort dómskerfið sé að standa sína plikt."
Fréttir Innlent Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira