Björgúlfur vildi hætta útgáfu DV skömmu fyrir jól 11. janúar 2006 23:03 MYND/gva
Mikil umræða hefur spunnist um fréttaflutning DV síðasta sólarhring eftir að maður á Ísafirði svipti sig lífi, í kjölfar myndbirtingar og ásakana á hendur honum í blaðinu. Hörð gagnrýni á DV er þó ekki ný af nálinni, þótt sviptingarnar hafi ekki alltaf komist upp á yfirborðið. Blaðið er hluti fjölmiðlasamsteypunnar 365, eins og Fréttablaðið, Stöð 2 og NFS. Allt er þetta í eigu móðurfélagsins Dagsbrúnar, þar sem Baugur ræður mestu, en Landsbankinn á líka lítinn hlut í Dagsbrún. Skömmu fyrir jól setti Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, sig í samband við flesta aðal- og varamenn í stjórn Dagsbrúnar, þegar honum ofbuðu, það sem hann leit á sem svæsnar innrásir DV, í einkalíf sitt og fjölskyldu sinnar. Þetta voru meðal annars fréttir DV af Þóru, eiginkonu Björgólfs og fyrra hjónaband hennar í Ameríku, soninn Björgólf og nýfætt afabarnið. Undir hendinni hafðu hann möppu með úrklippum DV, máli sínu til stuðnings. Tilgangur Björgólfs var meðal annars að kanna hvort vilji væri meðal annarra eigenda Dagsbrúnar, til að hætta útgáfu DV og ef menn vildu ekki slá blaðið af að skipta í það minnsta um ritstjóra. Björgólfur skrifaði auk þess bréf til Þórdísar J. Sigurðardóttur, stjórnarformanns Dagsbrúnar, þar sem hann óskaði skriflega svars við því, hvort hún teldi blaðamennsku af því tagi sem DV stundar væri stjórn fyrirtækisins þóknanlegar. Björgólfur fundar með Jóni ÁsgeiriBjörgólfur gekk einnig á fund Jóns Ásgeirs Jóhannessonar forstjóra Baugs í sömu erindagjörðum. Þeim Björgólfi og Jóni Ásgeiri mun báðum hafa hitnað verulega í hamsi á fundinum.Björgólfur fékk þau svör, eftir því sem næst verður komist, að hvorki Baugur né Jón Ásgeir skipti sér nokkuð að rekstri Dagsbrúnar, enda sé það hlutafélag skráð á markaði.Verulega mun þó hafa hitnað undir ritstjórum DV um tíma, þeim Jónasi Kristjánssyni og Mikaeli Torfasyni, enda allt vitlaust á æðstu stöðum eins og einn viðmælandi fréttastofu orðaði það.Ekki náðist í Jón Ásgeir vegna þessa, en hann tók samkvæmt heimildum fréttastofu ekki í mál að skipta Gunnari Smára Egilssyni, þá forstjóra 365 miðla, eins og Björgúlfur gerði kröfu um.
Fréttir Innlent Mest lesið Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Innlent 70 prósent landsmanna hlynnt banni Innlent Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna Innlent Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Innlent Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Erlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent Víðir hefur nú loks tíma fyrir Lunch United Innlent Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Erlent Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Erlent Fleiri fréttir Hvetja fólk til að plokka flugeldarusl á nýársdag Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Víðir hefur nú loks tíma fyrir Lunch United Samfélagsmiðlabann án fræðslu stoðar lítið Samfélagsmiðlabann nýtur mikils stuðnings og flugeldasalan í fullum gangi Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna 70 prósent landsmanna hlynnt banni Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Tvö handtekin fyrir þjófnað og þrír fyrir sölu og dreifingu Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Sjá meira
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent