Lítil ástæða til að óttast hringormasmit í sushi 4. janúar 2006 22:04 Mynd/Vísir
Hringormasmit er eitthvað sem líklega enginn vill greinast með en þeir geta leitað í mannslíkamann eftir neyslu á hráum og hálfhráum fiski. Sushineytendur ættu þó ekki að þurfa að óttast þrátt fyrir að hrár fiskur sé megin uppistaðan í þessu japanska góðgæti. Vinsældir sushi hafa aukist mjög mikið hér á landi á síðari árum. Fréttir af hringormasmiti í fólki eftir neyslu á hráum og hálf hráum fiski hefur eflaust skapað óhug meðal margra enda ekki girnileg tilhugsun um að finna hringorm í munni sér eftir að hafa borðað fisk. Guðmundur Freyr Ævarsson, yfirkokkur á Ó Sushi, segir ástæðulaust fyrir fólk að óttast sushi en sushigerðarmenn noti eingöngu fyrsta flokks hráefni sem er laust við alla orma. Hann segir einkum lax, túnfiskur og lúða verða notuð í sushi sem og skelfiskur sem sé nær alltaf soðinn áður en hann er framreiddur. Hann undirstrikar þó mikilvægi þess að meðhöndla allt hráefni rétt, hvort sem um fisk ræðir eða aðra fæðu. Karl Skírnisson, dýrafræðingur hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, birti nýverið grein um hringormasmit hér á landi sem birtist í 1. tölublaði Læknablaðsins. Hann segir að hringormar geti fundist í flestum tegundum fiskjar en hringormar séu algengari í sumum tegundum en öðrum, líkt og í steinbít, þorski, loðnu, síld og makríl. Hringormar finnast hins vegar sjaldan í ýsu þar sem ýsa lifir nær eingöngu á skeldýrum. Karl segir auðvelt er matreiða fisk svo hringormar komist ekki lifandi ofan í menn. Hringormar drepast við hitun upp fyrir 70 gráður í eina mínútu og líka ef hann er geymdur í um 20 gráðu frosti í viku eða meira.
Fréttir Innlent Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira