Þingið annist rannsókn hlerunargagna 2. júní 2006 06:30 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Stjórnarandstaðan vill að Alþingi annist rannsókn hlerunargagna og annarra gagna er varða öryggi þjóðarinnar á kaldastríðsárunum.
Stjórnarandstæðingar gagnrýndu ráðherra á Alþingi í gær fyrir að hafa ekki samráð við þingið og þingflokksformenn allra flokka um skipan nefndar sem heimilað verður að rannsaka gögn er varða öryggi þjóðarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingunni, kvaddi sér hljóðs um málið og spurði forseta Alþingis hvort til stæði að hálfu þingsins að kalla til fulltrúa allra þingflokkanna til þess að ná sátt um það hvernig fjallað yrði um upplýsingar sem Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur hefur lagt fram um símhlerun stjórnvalda á kaldastríðsárunum. Hlerun náði ekki aðeins til stjórnmálaflokka og verkalýðshreyfingarinnar heldur einnig alþingismanna sem njóta friðhelgi. Steingrímur J. Sigfússon, vinstri grænum skoraði á forseta Alþingis að fara sömu leið og gert hefði verið í svipuðum tilvikum, meðal annars á vegum norska stórþingsins. Taldi Steingrímur þingsályktunartillögu forsætisráðherra um málið allt of takmarkaða. Þetta snýst um að þinghelgi hafi verið rofin og þingmennirnir hafi sætt stórfelldum pólitískum njósnum, sagði Steingrímur og taldi brýnt að fyrirbyggja að njósnir af þessu tagi gætu endurtekið sig. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kvaðst gera ráð fyrir að farið yrði yfir málið í samræmi við þingsályktunartillöguna og nefnd sérfróðra mundi skila af sér fyrir árslok. Hann kvaðst ekki vilja verja símhleranir með neinum hætti. Kanna yrði hvað satt og rétt væri í málinu og framhald þess réðist af því. Hins vegar finnst mér að menn eigi að fara varlega í fullyrðingar sínar um þessi atriði, tala um að brotin hafi verið þinghelgi... Mér þætti eðlilegast að þingið sameinaðist um þessa tillögu, sagði Geir H. Haarde utanríkisráðherra í umræðunum. Mörður Árnason, Samfylkingunni, sagði að í orðum Geirs fælist sú afstaða að honum þætti í lagi að hann og dómsmálaráðherra mættu láta hlera síma án þess að það teldist rof á þinghelgi. Það er algerlega nýr skilningur á lýðræðislegum vinnubrögðum í landinu, sagði Mörður.
Innlent Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira