Dagsbrún enn áhugasöm um Orkla Media 17. febrúar 2006 22:09 MYND/Hari
Eigendur Orkla Media fjölmiðlarisans eru reiðubúnir að hlusta á tilboð í félagið, að því er norskir fjölmiðlar greina frá í dag. Forstjóri Dagsbrúnar segir stjórn fyrirtækisins enn áhugasama um Orkla. Greint var frá því fyrir nokkrum vikum að Dagsbrún, móðurfélag 365-miðla, væri að skoða möguleika á kaupum á norska fjölmiðlafyrirtækinu Orkla Media, sem rekur meðal annars dönsku blöðin Berlingske Tidene, BT og Weekendavisen. Í vikunni var svo sagt frá því að fleiri aðilar hefðu áhuga á hugsanlegum kaupum, og aukinheldur að eigendur norska blaðsins Dagbladet hafi þegar ákveðið að bjóða í Orkla. Norska ríkisútvarpið greindi síðan frá því í dag, og vitnar þar í norska fréttavefinn NTB, að stjórn Orkla hafi ákveðið að hlusta á tilboð í samsteypuna, hvort sem er í heild sinni eða að hluta. Fram kemur í tilkynningu sem vitnað er til að áhugasömum kaupendum sé hér með boðið að bjóða í félagið. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, vildi ekki veita NFS viðtal um málið í dag, enda sagði hann ekkert nýtt að frétta af hálfu fyrirtækisins. Stjórnin væri ennþá að skoða þennan möguleika og vildi ekki útiloka neitt. Aðspurður um þær fréttir danska ríkisútvarpsins, að Dagsbrún væri að huga að blaðaútgáfu í Danmörku, sagðist Gunnar Smári hvorki getað játað því né neitað. Eins og hann hafi áður sagt hafi Dagsbrún áhuga á útrás og leiti því nú ýmissa tækifæra á erlendum fjölmiðlamarkaði.
Fréttir Innlent Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Innlent Fleiri fréttir Kristrún hafi ekki lagt hjarta og sál í baráttuna Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent