Heimildir um að Ólafur Jóhannesson hafi vitað um öryggisþjónustuna 28. október 2006 14:19 Ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar 1979
Heimildir, sem Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur hefur séð, gefa til kynna, að Ólafi Jóhannessyni, forsætis- og dómsmálaráðherra árin 1971-74, hafi verið kunnugt um flesta þætti í starfsemi öryggisþjónustu lögreglunnar, að því er kemur fram í grein Guðna í Morgunblaðinu í dag. Í umræðum um hlerunarmál lögreglunnar að undanförnu hafa verið uppi vangaveltur um hvaða ráðherrar vissu um leynilega eftirlitsstarfsemi lögreglunnar á árum áður. Meðal annars hafa Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi utanríkis, og forsætisráðherra, sagst ekki hafa vitað um slíka starfsemi. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skrifar um þessi mál á heimasíðu sinni í dag og segir meðal annars, að miðopnugrein í Morgunblaðinu í dag, eftir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra,taki endanlega af skarið um, að bægslagangurinn í honum vegna svonefndra hleranamála undanfarið hafi tengst prófkjöri okkar sjálfstæðismanna, eins og Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, vék að á eftirminnilegan hátt á fundi okkar í Valhöll laugardaginn 21. október. Björn segir að Jón sé að reyna að hlutast til um innri málefni Sjálfstæðisflokksins með því að fá inni í Morgunblaðinu með greinina á síðari prófkjörsdegi sjálfstæðismanna. Björn segist ýmsu hafa kynnst á stjórnmálaferli sínum en aldrei áður verið sakaður um að bera ábyrgð á atvikum, sem kunni að hafa átt sér stað löngu áður en til ábyrgðar hans kom á nokkru því, sem til umræðu sé. Björn segir, að hann hafi verið talsmaður þess um langt skeið að öll gögn í þessum málum verði lögð á borðið. Hann segist telja, að þessi mál séu núna í þeim farvegi, að hið sanna hljóti að koma í ljós, en verði nauðsynlegt að stíga einhver frekari skref af hálfu löggjafans að þessu leyti, þá sé hann að sjálfsögðu tilbúinn til að skoða allar hugmyndir um það. Í grein Jóns Baldvins í Morgunblaðinu í dag hvetur hann Björn til að skipa rannsóknarnefnd þingsins til að rannsaka þessi mál á svipaðan hátt og gert var í Noregi. Björn er efins um að unnt sé að bera saman ástand í Noregi og þau atvik, sem nefnd hafa verið hér á landi. Guðni Jóhannesson segir í Morgunblaðsgrein sinni öryggisþjónustu lögreglunnar hér hafa verið svo máttlitla, að ráðamenn hafi nær aldrei getað farið offari þegar öryggi ríkisins þótti vera í veði. Það sé líklega helsti munurinn á því sem gerðist hér og þeim viðamiklu persónunjósnum sem voru stundaðar á valdaskeiði jafnaðarmanna í Noregi og Svíþjóð á sínum tíma.
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Fleiri fréttir Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Sjá meira