Enginn samningur til 21. febrúar 2006 18:45
Borgarstjóri segir að borgaryfirvöld geti farið með tilboð í lóðir við Úlfarsfell eins og þau vilji þar sem enginn samningur hafi verið gerður við þá sem áttu hæstu tilboðin. Heppilegra hefði þó verið ef öll tvímæli hefðu verið tekin af í útboðsgögnum. Benedikt Jósepsson átti hæsta boð í 39 af 40 einbýlishúsalóðum í lóðaútboðinu í Úlfarsárdal sem lauk síðast fimmtudag. Fyrirtæki máttu ekki bjóða í einbýlishúsalóðirnar og parhúslóðirnar og því buðu Benedikt og fleiri sem byggingaverktakar í þessar lóðir í eigin nafni. Ef tillaga borgarstjóra verður að veruleika mun Benedikt ekki fá aðeins fá eina lóðina. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri segir þann vilja borgaryfirvalda að hver og einn fái aðeins eina einbýlishúsa- eða parhúsalóð hafa verið skýran frá upphafi. Hún segir vissulega að betra hefði verið að taka það fram í útboðsgögnunum. Steinunn segir þó ljóst að enginn samningur hafi verið gerður við þá sem áttu hæstu boðin í lóðirnar og því geti borgaryfirvöld gert það sem þeim sýnist í málinu. Bjarni Tómasson og Gunnar Jónasson áttu hæsta tilboð í 31 parhúsalóð af 43. Þeir eru eigendur fyrirtækisins September sem bauð í lóðir ætlaðar verktökum og áttu þeir hæsta tilboð í ellefu raðhúsalóðir. Í Samtali við NFS sagðist Bjarni ánægður með að fá bara eina parhúsalóð þrátt fyrir að hafa átt hæsta boð í 31, það hafi verið það sem hann hafi vonast eftir. Hann og fyrirtæki hans munu því eftir útboðið líklega standa eftir með ellefu raðhúsalóðir og eina parhúsalóð nái tillaga borgarstjóra fram að ganga. Þeir sem litu út fyrir að hafa dottið í lukkupottinn í útboði einbýlishúsa- og parhúsalóðanna munu fá eina lóð hver og munu borga fyrir þær hærra verð en þeir sem munu fá hinar lóðirnar sem þeir áttu hæsta boð í.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira