Dæmdar skaðabætur þrátt fyrir gáleysi 21. febrúar 2006 17:03
Eigendur gistiheimilis á Höfn í Hornafirði voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða manni rúmar 1,3 milljónir í skaðabætur með vöxtum í tæp 3 ár auk 450 þúsund króna í málskostnað vegna vinnuslyss sem varð í september 2001 þegar maðurinn vann við að mála gistiheimilið. Slysið varð þegar starfsmaður gistiheimilisins Ásgarðs var að mála húsið að utan. Stefnandi stóð á 2,6 metra háum álvinnupalli á hjólum sem stóð á grasi og reisti ásamt samstarfsmanni 2,8 metra langan stiga uppi á pallinum. Samstarfsmaðurinn fór upp í stigann en þegar pallurinn byrjaði að halla datt stefnandi af pallinum og hafnaði á bakinu. Eftir slysið kveðst stefnandi hafa fundið fyrir miklum verkjum enda kom í ljós samfallsbrot á mjóhrygg. Varanlegur miski var metinn 12%, en varanleg örorka 50%. Fyrir dóminum var deilt um hver bæri ábyrgð á slysinu. Eigendur gistiheimilisins töldu það hvíla á stefnanda að gera ráðstafanir til að tryggja að undirstöður verkpallsins væru traustar til dæmis með því að setja undirstöður undir hjól hans. Dóminum þótti hinsvegar vega þyngra að stefnandi hafi ekki átt annarra kosta völ en að vinna verkið með þeim verkfærum sem honum voru fengin. Umsjónarmaður verksins sem var á vegum eigenda gistiheimilisins hafi ekki gert athugasemdir við verklagið en stefnandi og samstarfsmaður hans höfðu margoft kvartað yfir ástandi pallsins án þess að fá viðbrögð. Í dóminum segir að aðgerðarleysi verkstjórans eftir réttmætar kvartanir geri það að verkum að sökin hvíli á eigendum gistiheimilisins.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira