Innlent

Bílbeltið gaf sig

Bílbelti slitnaði á ögurstund, með þeim afleiðingum að ökumaður á tvítugsaldri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann ók út af Sandgerðisvegi um klukkan hálf sjö í gærkvöldi og bílinn valt. Hann var einn í bílnum og kastaðist út úr honum eftir að beltið slitnaði.

Lögregla og Rannsóknanefnd bílslysa rannsaka tildrög slyssins, og af hverju bílbeltið slitnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×