Bygging hátæknisjúkrahúss vitleysa 3. febrúar 2006 23:10
Fyrrverandi yfirlæknir á Landspítalanum segir byggingu hátæknisjúkrahúss við Hringbraut gamla og vitlausa stefnu sem kosti of mikið. Hann segir nær að nýta betur þann góða spítala sem Landspítalinn í Fossvogi er. Alls verður 18 milljörðum af söluandvirði Símans varið til þess að byggja upp nýtt hátæknisjúkrahús en það nemur um helmingi áætlaðs kostnaðar við bygginguna. Fyrrverandi yfirlæknir á Landspítalanum, Ólafur Örn Arnarson, segir þessa hugmynd úrelta. Ólafur segir hugmyndina náttúrulega mjög dýrt fyrirtæki, það sé verið að tala um 50-60 milljarða sem það kosti að reisa þetta sjúkrahús. Síðan eigi að brjóta niður hús í Vatnsmýrinni sem sé um 9000 fermetrar og í mjög góðu standi. Síðan eigi að henda spítalahúsinu í Fossvogi, sem sé 30 þúsund fermetrar og sé besta spítalahús landsins í dag. Þar séu bestu legudeildir landsins, nýuppgerðar skurðstofur og gjörgæsla o.fl. og að mjög auðvelt sé að byggja við það. Danskir ráðgjafar voru fengnir hingað til þess að meta aðstæður og leiddi Ólafur þá um svæðið. Hefur Ólafur eftir þeim að Fossvogurinn sé langbesta svæðið. Það sé best staðsett með tilliti til íbúa Reykjavíkurborgar sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Ólafur segir slíkt sjúkrahús alltof stórt fyrir 300 þúsund manns. Í nágrannalöndunum hafi þróunin verið sú að ýmis þjónusta hafi verið að færast frá sjúkrahúsunum og inn á dagdeildir og heilsugæslu. Hann segir þetta vera vitlausa stefnu og gamla stefnu og að byggja eigi við spítalann í Fossvogi. Það sé hægt að gera það á tilltölulega stuttum tíma. Peningarnir sem komu fyrir sölu símans, 18 milljarðar, myndu auðveldlega duga fyrir það og þá væri hægt að ná fram þeim sparnaði í rekstri sem að sameining líkamlegu bráðadeildanna á einn stað býður upp á. Þá segir Ólafur að fjölgun hjúkrunarrýma myndi lækka kostnað á sjúkrahúsunum til muna. Segir hann alltof fá hjúkrunarpláss vera í landinu. Samkvæmt ráðuneytinu skorti um 400 hjúkrunarpláss mjög bráðlega.
Fréttir Innlent Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira