Innlent

Söfnuðurinn vildi séra Sigurð

Mynd/Valgarður Gíslason

Safnaðarnefnd Íslenska safnaðarins í London segir þá ákvörðun að velja séra Sigurð Arnarson í embætti sendiráðsprests hafa verið rétta og í samræmi við vilja og þarfir safnaðarins. Nefndin sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í kjölfar dómsúrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur og fjölmiðlaumfjöllunar um að við skipun séra Sigurðar Arnarsonar, tengdasonar biskups, í embætti sendiráðsprests í London hafi stjórnsýslu- og jafnréttislög verið brotin. Í yfirlýsingunni segir einnig að meðal safnaðarfólks ríki mikil ánægja með störf séra Sigurðar og mislíki því mjög að sjá varla nafn séra Sigurðar nefnt í fjölmiðlum án þess að viðskeytið ,,tengdasonur biskups" fylgi þar á eftir.

Í meðfylgjandi greinargerð frá safnaðarnefndinni segir enn fremur að söfnuðurinn hafi lagt sérstaka áherslu á að nýr prestur hefði menntun í sálgæslu vegna margvíslegra félagslegra aðstæðna Íslendinga í London. Í stefnu sækjanda hafi því hins vegar verið haldið fram að óþarflega mikil áhersla hafi verið lögð á sálgæsluhlutverk prests Íslendinga í London í auglýsingu Biskupsstofu um starfið. Þá segir safnaðarnefndin að hún fái ekki orða bundist þegar því var haldið fram í málflutningi með stefnunni að sr. Sigurður Arnarson sé síður hæfur en sá sem ekki varð fyrir valinu. Safnaðarnefndin hafi rætt málið ítarlega á sínum tíma og komist að þeirri niðurstöðu að sr. Sigurður Arnarson væri einstaklega hæfur til starfans og tæki hinum umsækjandanum fram. Þá andæfir safnaðarnefndin þeirri staðhæfingu að sr. Sigurður hafi notið þess óeðlilega að hann hafði gegnt embætti fyrir sr. Jón Aðalstein Baldvinsson, fyrrverandi safnaðarprest í London, um ellefu mánaða skeið. Hefði hann ekki verið hæfur til að gegna embættinu hefði það komið vel í ljós áður en ákvörðun um ráðningu var tekin.

Niðurstaða héraðsdóms var að jafnréttislög hafi verið brotin þar sem Sigríður taldist jafn hæf og Sigurður. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í Skálholti, sem veitti embættið, segist hins vegar hafa veitt séra Sigurði Arnarsyni embættið á grundvelli hæfniskrafna. Í auglýsingu Biskupsstofu um starfið hafi verið lögð áhersla á sálgæsluhlutverk prests Íslendinga í London og Sigurður hafi lokið námi í sálgæslu. Vígslubiskupinn bætti því við að í dómsmálum að undanförnu hafi komið í ljós að varhugavert sé að sniðganga efnisatriði starfsauglýsinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×