Ólga meðal menntaskólakennara 3. febrúar 2006 22:11 Menntaskólinn í Reykjavík MYND/Teitur Jónasson
Mikil ólga er meðal kennara í menntaskólum landsins vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar sem undirritað var í gær. Þar er meðal annars er náð sátt um samstarf við endurskoðun á námi í tengslum við styttingu á námstíma til stúdentsprófs. Félag kennara Menntaskólans í Reykjavík hefur ályktað gegn samkomulaginu og kennarar í öðrum menntaskóla hafa jafnvel rætt úrsögn úr Kennarasambandinu. Fréttastofa NFS hefur rætt við kennara í 5 menntaskólum og segja þeir kennara undrandi og slegna yfir þessu samkomulagi. Enn sem komið er hafa þó Kennarar í Menntaskólanum í Reykjavík einir ályktað gegn samkomulaginu. Guðmundur J. Guðmundsson, trúnaðarmaður kennara í MR, segir styttingu náms til stúdentsprófs varasama og geta endað með skelfingu fyrir menntakerfið. Hann segir það vilja kennara að menntamálaráðherra dragi hugmyndir sínar um skerðingu til baka og taki málið þannig fyrir að öll skólastig verði tekin fyrir og endurskoðuð sem ein heild. Guðmundur segir formann Kennarasambands Íslands ekki hafa fengið neitt umboð frá félagsmönnum til þessarar samkomulagsgerðar. Í bréfi sem stjórn Félags framhaldsskólakennara hefur sent félagsmönnum segir að stjórn félagsins og kennarasamtökin hafi verið þeirrar skoðunar að hagsmunum nemenda og skóla væri betur borgið með að hafa áhrif á málið en að láta það ógert. Samkomulagið sé ekki merki um að kennarasamtökin hafi bakkað með stefnu sína í málinu og ætli aldrei að ljá máls á niðurskurði á námi nemenda og minni menntun. Aðkoma kennara ætti að auka líkurnar á að hægt verði að hrinda skerðingaráformum og stjórnin biður því um fararleyfi til að láta reyna á þetta grundvallaratriði.
Fréttir Innlent Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira