Býst við fjörugum umræðum á launamálaráðstefnu 14. janúar 2006 11:45 MYND/Vilhelm
Formaður launanefndar sveitarfélaganna segir miklar væntingar til launamálaráðstefnu sem haldin verið næsta föstudag en að þau deilumál sem uppi eru í kjaramálum verði ekki leyst strax þann dag. Hann býst við fjörugum umræðum á ráðstefnunni þar sem fjárhagsleg staða sveitarfélaganna sé mjög mismunandi. Launanefnd sveitarfélaga, sem fer með umboð sveitarfélaganna í kjaraviðræðum, boðaði í síðasta mánuði til launamálaráðstefnu. Kveikjan að ráðstefnunni voru samningar Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag borgarinnar, en bæði leikskólakennarar og almennir starfsmenn annarra sveitarfélaga vilja að kjör sín verði leiðrétt til samræmis við þá. Seturétt á fundinum eiga fulltrúar allra sveitarfélaga í landinu og formaður Launanefndarinnar, Gunnar Rafn Sigurbjörnsson,sem undirbýr ráðstefnuna býst við fjörgum umræðum.Það séu mismunandi viðhorf til þess hvernig bregðast eigi við ástandinu. Sum sveitarfélögin eigi fullt í fangi með að standast þær kröfur sem til þeirra séu gerðar og margir sveitarstjórnarmenn muni eflaust segja að ekki sé hægt að auka útgjöld. Gunnar bendir á að málið verði ekki leyst í eftirmiðdaginn 20. janúar. Væntingarnar til ráðstefnunnar séu miklar en málið sé umfangsmeira og flóknara en svo. Hann telur að samkeppni milli sveitarfélaganna bjargi ekki málunum. Samkeppnin yrði ekki eingöngu milli sveitarfélaga heldur milli sveitarfélaga og hins almenna markaðar. Hann sé ekki viss um að allir séu sammála um að sveitarfélögin leiði launaþróunina í landinu. Hann spyr sig hvort nota eigi skattfé til að yfirbjóða markaðinn. Gunnar segir að það sé sveitarfélaganna að koma með ábendingar að lausnum en Launanefndarinnar að útfæra þær og hann býst ekki við að það taki langan tíma að vinna úr þeim hugmyndum sem koma frá sveitarstjórnarmönnum. Hann sé ekki að tala um vikur eða mánuði heldur tiltölulega skamman tíma. Launanefndin hafi fylgst með því ástandi sem verið hafi í kjara- og launamálum og nefndin geti verið fljót að vinna úr niðurstöðum ráðstefnunnar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira