Rétt að draga úr áherslu á ál við milljón tonna framleiðslu 31. maí 2006 23:06 MYND/Valgarður
Þegar framleiðsla á áli er komin í eina milljón tonna á ári er af ýmsum ástæðum rétt að draga úr áherslu á þeim vettvangi, sagði iðnaðarráðherra í fyrirspurnartíma á þingi í dag. Fyrirspyrjandi sakaði ráðherra um að vera á flótta í málefnum áliðnaðarins. Það var Mörður Árnason sem spurði ráðherra að því hversu mörg terawött ráðherra teldi að fæ mætti árlega úr vatnsafli hérlendis með hagkvæmum hætti og að teknu tilliti til umhverfissjónarmiða. Sagðist hann að hluta til vera að endurtaka fyrirspurn frá því í mars sem hann taldi sig ekki hafa fengið skýr svör við. Innti hann ráðherra eftir skoðun. Valgerður Sverrisdóttir sagði tölur um virkjanlegt vatnsafl hafa breyst í áranna rás meðal annars vegna breyttra viðhorfa varðandi umhverfisáhrif. Valgerður vitnaði til orða orkumálastjóra frá ársfundi Orskustofnunar 2004 í svari sínu. Ef til vill væri réttara að tala nú um 26 terawattsstundir á ári í stað 30 áður vegn breyttra viðhorfa varðandi umhverfisáhrif vatnsaflsvirkjana Mörður spurði einnig hvort ráðherra væri enn þeirrar skoðunar sem hann lýsti í ræðu á iðnþingi í fyrra og var greint frá í ritinu Íslenskur iðnaðurað „þegar framleiðsla í stóriðju yrð komin í sem svarar til einnar milljónar tonna álframleiðslu á ári yrði af ýmsum ástæðum rétt að láta gott heita. Ráðherra sagði ekki rétt eftir sér haft. Hún hafi hins vegar sagt við fjölmiðla eftir Iðnþingið að þegar framleiðsla á áli væri komin í eina milljón tonna á ári væri af ýmsum ástæðum rétt að draga úr áherslu á þeim vettvangi. Valgerður benti einnig á að þrjú starfandi álver í landinu hefðu öll lýst yfir frekari áhuga á fjárfestingu í greininni en að stjórnvöld drægju þar ekki vagninn. En Mörður sagði ráðherra illa við umræðuna. Valgerður vildi ekki staldra við tölurnar vegna þess að hún vildi hafa eitt verkefni í einu þangað til svo langt væri gengið sem orkuiðnaðurinn, sem væri hinn eiginlegi húsbóndi ráðherra, væri orðinn ánægður og þegar ekki yrði fleira virkjanlegt af hagkvæmnisástæðum. Það væri hinn raunverulega ástæða fyrir því að iðnaðarráðherra væri á flótta í bæði fyrirspurnartímanum í gær og í mars.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Innlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Innlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Erlent Fleiri fréttir Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Sjá meira