Konur hugsi betur um hjartað 14. febrúar 2006 15:42 MYND/GVA
Konur verða að hugsa betur um hjartað í sér þar sem þær eiga ekki síður en karlar á hættu að fá hjarta- og æðasjúkdóma. Þetta eru skilaboð Alþjóðahjartasamtakanna og Hjartaverndar í dag, á Valentínusardaginn. Alþjóðahjartasamtökin ýta í dag úr vör kynningu og átaki til að vekja konur til meðvitundar um að hjata- og æðasjúkdómar séu ein helsta dánarorsök kvenna á heimsvísu líkt og karla. Hér á landi hefur Hjartavernd látið til sín taka í málinu, en samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar frá árinu 2004 létust tæplega 300 konur af völdum hjarta- og æðasjúkdóma en um 250 af völdum illkynja æxlis. Ætlunin er auk þess að kenna konum að þekkja helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma en tíðni þeirra eykst eftir því sem konur eldast og á ákveðnum aldri ná þær körlum í tíðni sjúkdómanna. Bylgja Valtýsdóttir, upplýsingafulltrúi Hjartaverndar, segir konur almennt búa við falskt öryggi um að þær fái ekki hjartasjúkdóma og þurfi ekki að láta mæla kólesteról eða blóðþrýsting. Svo einfalt sé málið ekki og konur þurfi að þekkja þessa þætti. Til þess að hafa hjartað í lagi þarf meðal annars að hreyfa sig, gæta að mataræðinu, fylgjast með blóðþrýstingi og kólesteróli og reykja ekki. Bylgja segir einnig mikilvægt að konur láti kanna áhættuþætti sína. Hjá Hjartavernd sé hægt að panta tíma fyrir áhættumat þar sem fram fari mælingar á helstu áhættuþáttum. Þar sé innifalið viðtal við lækni þar sem reiknaðar séu líkurnar á áfalli á næstu tíu árum út frá hjartareiknivél Hjartaverndar. Fólki sé beint inn í heilbrigðiskerfið ef þurfa þyki. Mikilvægt sé að komast að því hver staðan sé.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sjá meira