Vegstyttingu framhjá Blönduósi hafnað 24. apríl 2006 19:05
Umhverfisráðherra hefur fallist á sjónarmið Austur-Húnvetninga um að hafna einhverri arðbærustu framkvæmd sem völ er á hérlendis; þrettán kílómetra styttingu hringvegarins fram hjá Blönduósi. Einkahlutafélagið Leið hefur hins vegar óskað eftir umhverfismati til að fá að leggja veginn sem einkaframkvæmd.Þessi vegstytting er með allra hagkvæmustu framkvæmdum sem fyrirfinnast í landinu, samkvæmt nýlegri úttekt Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri fyrir Leið ehf. Það félag beitti undirbjó jarðveginn fyrir vegagerð um Arnkötludal á Vestfjörðum en tilgangur þess er að beita sér fyrir einkafjármögnun samgöngumannvirkja.Félagið vill nú ráðast í nýtt verkefni og hefur sent Skipulagsstofnun drög að tillögu að mati á umhverfisáhrifum nýs 16 km langs vegar sem félagið nefnir Húnavallabraut, en hann myndi liggja frá Stóru-Giljá og þvert inn í miðjan Langadal með nýrri brú á Blöndu. Samkvæmt úttekt Háskólans á Akureyri er samfélagslegur ábati þessarar styttingar metinn á 2,6 milljarða króna og arðsemi verkefnisins 27 prósent.Við gerð svæðisskipulags Austur-Húnavatnssýslu óskaði Vegagerðin eftir því í febrúar í fyrra að nýtt vegarstæði hringvegarins þarna yrði sett inn á skipulag. Sameiginleg nefnd sveitarfélaga á svæðinu hafnaði þeirri ósk með þeim orðum að það væri samdóma álit heimamanna að lega hringvegar væri á allan hátt farsælust fyrir héraðið um Blönduós þar sem Blönduós væri aðalþjónustukjarni og miðstöð héraðsins. Töldu Austur-Húnvetningar raunar heppilegra að hringvegurinn yrði í framtíðinni lagður norður fyrir Blönduós, um Þverárfjall, Sauðárkrók, Hjaltadal og um jarðgöng yfir í Barkárdal og þaðan til Akureyrar. Synjun Austur-Húnvetninga á nýju vegarstæði framhjá Blönduósi fór fyrir Skipulagsstofnun, sem afgreiddi hana án athugasemda til Sigríðar Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra. Þann 23. mars síðastliðinn staðfesti ráðherrann nýtt svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu sem gildir til ársins 2016 þar sem ekki er gert ráð fyrir vegstyttingu. Skipulagsstofnun á hins vegar enn eftir að afgreiða ósk Leiðar ehf. um að vegurinn verði settur í umhverfismat.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira