Stjórnvöld ætla að veita 20 milljónum til Rauða krossins 6. júní 2006 16:53 MYND/VÍSIR
Stjórnvöld ætla að veita 20 milljónum króna til alnæmisverkefna Rauða krossins og Rauða hálfmánans í sunnanverðri Afríku. Framlagið nemur samtals um 320.000 bandaríkjadollurum og verða peningarnir greiddir út í fjórum jöfnum greiðslum á árunum 2006-2009. Ríkisstjórnin og Rauði kross Íslands lögðu fram áheit um samvinnu um stuðning við alnæmissjúka á 28. alþjóðaráðstefnu Rauða krossins og Rauða hálfmánans og ríkja sem eru aðilar að Genfarsamningunum. Tilkynnt var um þetta framlag ríkisstjórnarinnar á ráðherrafundi Sameinuðu þjóðanna um alnæmi sem haldinn var í New York dagana 1.-2. júní s.l. Í fréttatilkynningu er greint frá því að Rauði krossinn fagni mjög þessum stuðningi ríkisstjórnarinnar. Alnæmi er einn helsti ógnvaldur íbúa í löndunum sunnan Sahara, þar sem hlutfall smitaðra meðal fullorðinna er um 25-30% og jafnvel enn hærra í sumum löndum. Rauði kross Íslands hefur síðan árið 2000 stutt Rauða krossfélögin í sunnanverðri Afríku í glímunni við þennan vágest, bæði í samvinnu við Alþjóðasamband Rauða krossins, landsfélög Rauða krossins í Suður Afríku, Malaví og Mósambík og Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Um tuttugu og fimm ár frá því að alnæmisveiran greindist fyrst en síðan þá hafa um 25 milljónir manna látist af völdum sjúkdómsins. Þessi vágestur, sem alnæmi er, hefur grafið undan bjargráðum Afríkuríkja og því hefur dregið úr getu samfélaganna til að fást við vandann. Rauði krossinn hefur um árabil unnið að alnæmisverkefnum í álfunni en verkefni hans snúa einkum að aðhlynningu, forvörnum, stuðningi við munaðarlaus börn og starfi sem miða gegn fordómum. Í fréttatilkynningu Rauða Krossins er greint frá því að fjöldi smitaðra eygi nú von um að halda sjúkdómnum í skefjum vegna framboðs á ódýrum alnæmislyfjum auk þess sem bent er á að framlagið skapi færi á að halda alnæmisfaraldrinum í skefjum og draga úr nýsmitum.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent Fleiri fréttir Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Sjá meira