Hvað á barnið að heita? 10. febrúar 2006 21:56
Nöfnin Naranja og Bill eru íslensk mannanöfn en ekki Júdith og Mikhael samkvæmt ákvörðun þriggja manna nefndar, sem hefur það í hendi sér hvað Íslendingar mega og mega ekki heita. Mannanafnanefnd hafnaði nafninu Júdith á síðasta fundi sínum, en th-endingin telst ekki vera í samræmi við almennar ritreglur. Á sömu forsendum var nafninu Mikhael hafnað, þó svo tveir núlifandi Íslendingar beri nafnið og heimilt sé að skrá það með c og h. Nefndin gaf hins vegar grænt ljós á karlmannsnafnið Kilían á þeim forsendum að það sé annar ritháttur Nóbelsverðlaunaskáldsnafnsins Kiljans. Þá mega drengir nú bera nafnið Tóki og sömu sögu er að segja um nafnið Bill. Nafnið Bill hefur hingað til verið algengt gælunafn í Bandaríkjunum, en tekur íslensku eignarfallsendinguna til Bills og er nú komið í mannanafnaskrá. Drengir mega nú bera millinafnið Birgis en það telst ekki hafa unnið sér hefð sem eiginnafn eða fyrra nafn, þrátt fyrir að einn núlifandi maður beri nafnið. Birgis Jónsson gengur því ekki upp en Bill Birgis Jónsson er í lagi. Kvenmannsnafnið Daley var samþykkt á fundi mannanafnanefndar og einnig kvenmannsnafnið Naranja. Naranja tekur íslenska eignarfallsendingu og gæti hljómað kunnuglega í eyrum einhverra, en Naranja þýðir appelsínusafi á spænsku.
Fréttir Innlent Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira