Spá hruni flestra fiskistofna innan 50 ára 3. nóvember 2006 17:55
Hópur erlendra sérfræðinga spáir því að allir fiskistofnar heimsins hrynji innan fimmtíu ára verði ekkert að gert. Þeir segja að nú þegar hafi um 30 prósent nytjastofna hafsins hrunið. Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir enga vá blasa við íslenskum fiskistofnum en auka verði skipulagða fiskveiðistjórnun í heiminum. Sérfræðingarnir segja ástæður fyrir hruni fiskistofna vera minni fjölbreytileika nytjategunda í hafinu, meiri mengun og ofveiði. Niðurstöður vísindamannanna eru birtar í vísindatímaritinu Science sem kom út í dag. Hópur vistfræðinga og hagfræðinga annaðist rannsóknina sem stóð yfir í fjögur ár og byggir á gögnum víðs vegar að úr heiminum. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunarinnar, segir að skoða beri allar svona rannsóknir, en hefur ekki miklar áhyggjur af Íslandsmiðum. Hann segir Íslendinga sjálfa hafa mest um það að segja hverning til tækist með uppbyggingu nytjastofna á Íslandsmiðum. Sjórinn við Ísland væri tiltölulega hreinn og vel hefði tekist til við fiskveiðistjórnun á flestum sviðum. Hins vegar gengi ver að eiga við stjórnun fiskveiða þar sem margar þjóðir koma að málum, eins og t.d. við Norður-Atlantshaf. Jóhann segir að þótt Íslendingar standi nokkuð vel, megi gera mun betur í stjórnun fiskveiða í heiminum. Það sé mjög mikilvægt að Íslensk stjórnvöld töluðu fyrir eflingu fiskveiðistjórnunar á alþjóðavettvangi. Það að aðrar þjóðir væru með fiskveiðistjórnunina í ólagi sverti ímynd fiskveiða almennt. Ástand fiskistofna væri hins vegar jafn misjafnt og þeir væru margir í heiminum. Eitt af því sem alþjóðlegi vísindamannahópurinn mælir með til að sporna gegn vandanum er að auka friðun hafsvæða fyrir veiðum. Jóhann segir að íslensk rannsókn á þessu bendi til að til að ná árangri með friðun svæða, þurfi að friða mjög stór svæði. Mun vænlegra sé að stýra veiðunum með skynsömum hætti.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira