Blóðugur skæruhernaður á íslenskum tímaritamarkaði 3. nóvember 2006 12:15 Reynir Traustason sakar Mikael Torfason, gamlan vopnabróður af DV, og hans fólk um að beita skæruliðum gegn sér í tímaritamarkaði. "
Blaðið er uppselt þrátt fyrir skæruliðasveitir Fróða," segir Reynir Traustason, ritstjóri nýja tímaritsins Ísafold, og hlær við. "Þeir keyra milli verslanna og henda blaðinu okkar til hliðar en við tökum þessu sem hverju öðru hundsbiti og lögum jafnóðum til eftir þá." Reynir ber samkeppnisaðilanum sem gefur út aragrúa af tímaritum, þar á meðal Séð&Heyrt, Mannlíf, Hús og hýbíli og Bleikt og blátt, þungum sökum en segist þó halda ró sinni. "Ég hef gaman að því að þeir skuli ætla að mæta samkeppninni svona, með því að fara um allt eins og stormsveipur og snúa við rekkum svo Ísafold sjáist ekki. Þetta er lágkúruleg aðferð til að ota fram eigin vöru." Reynir segir skemmtilegasta dæmið um aðgerðir samkeppnisaðilans hafa átt sér stað í verslun þar sem Ísafold var mokað úr blaðarekka ofan í innkaupakerru og ýtt til hliðar. "Síðan var brauð og ýmislegt annað sett ofan á blöðin í kerrunni til að tryggja að blaðið yrði örugglega ekki keypt en það er svo skemmtilegt að markaðurinn svaraði þannig að blaðið seldist upp úr innkaupakerrunum," segir Reynir. Mikael Torfason, aðalritstjóri Birtings, sem keypti leyfarnar af tímaritaútgáfu Fróða ekki alls fyrir löngu vísar ásökunum síns gamla félaga á bug þó þessir fyrrum samherjar á DV séu vissulega komnir í hár saman á tímaritamarkaðnum. "Ég kannast ekki við neinar skæurliðasveitir á okkar vegum og finnst þetta súrrealísk spurning enda er fólk ekki vitleysingar og kaupir þau tímarit sem það vill óháð því hvar þau eru staðsett í verslunum," segir Mikael sem telur Reyni vera að vakna upp við þá staðreynd að lausasala tímarita á Íslandi sé "erfiðasti bissniss í heimi." "Ég myndi í hans sporum einbeita mér að því að gera góð blöð. Það geri ég," segir Mikael og bætir því við að hann geti ekki staðið í því að skipta sér af uppstillingu tímarita í öllum verslunum. "Ég held að 365 miðlar séu ekkert of hressir með þessa útgáfu Reynis," segir Mikael og telur meinta skæruliða frekar á vegum fjölmiðlasamsteypunnar. "Þeir hafa meira bolmagn til þess að standa í þessu en ég enda er ég ekki að þessu. Á Baugur hvort eð er ekki flestar þessar verslanir? Reynir verður að eiga þetta við Jón Ásgeir en ekki mig." Reynir ber sig, sem fyrr segir vel, og óttast ekki hörkuna á markaðnum. "Það er mikil stemning í þessu þó við stöndum í einhverju smáböggi. Nóatún vill til dæmis ekki selja blaðið en selur Bleikt og Blátt. Það er þeirra vandamál vilji þeir frekar selja klámblöð en virðuleg tímarit. Ég hef rætt þetta við menn þar og það liggja annarlegar ástæður að baki. Ég hef lengi verslað í Nóatúni í Grafarholti en er hættur því og það er ekki síst barnanna vegna en ég sniðgeng þá eins og þeir sniðganga mig."
Menning Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ Tónlist Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Fleiri fréttir Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Sjá meira