"Bjór með blóðbragði" í Ekstrabladet 1. nóvember 2006 19:23
Ekstra bladet tengir í dag fjármálaveldi Björgólfs Guðmundssonar og sonar hans, Björgólfs Thors, við blóðug mafíuátök í Rússlandi. Nefnd eru til sögunnar leigumorð og pólitísk spilling í baráttu um bjórmarkaðinn í borginni. Áfram heldur Ekstrablaðið danska að tengja íslenska fjármálamenn við spillingu og glæpi. Hvergi er nokkur beinlínis sakaður - en bent er á vafasama samferðamenn og óheilbrigt umhverfi. Í dag var komið að feðgunum Björgólfi Guðmundssyni, Björgólfi Thor, syni hans og Magnúsi Þorsteinssyni - en saman byggja þeir auðsinn á bjórverksmiðjunni Bravó í Pétursborg í Rússlandi. "Mafíustríð á bjórmarkaði" er yfirskrift opnugreinar Eklstrabladed í dag. Rifjað er upp launmorðið á áhirfamiklu þingkonunni Galinu Starovojtovu árið 1998 en hún var skotin í hnakkann fyrir utan heimili sitt. Ráðgjafi hennar greindi frá því fyrir rétti, segir Ekstrabladet, að skömmu fyrir morðið hafi menn frá Björgólfi Thor leitað ásjár hjá henni vegna þvingana sem þeir hafi orðið fyrir. Árið eftir var komið að keppinautum íslendinganna en þá myrtu leigumorðingjar Aslanbek Gallojev um hábjartan dag en hann var tengdur Baltika bjórverksmiðjunni, helsta keppinauti Björgólfsfeðga. Aðstoðarforstjóri sama fyrirtækis Ilja Weisman hlaut sömu örlög árið 2000. Tengir Ekstrabladed síðan þessi blóðugu mafíuátök við pólitíska spillingu. Er því svo slegið fram að þrátt fyrir þetta stríð hafi Björgólfur Thor "sloppið" - eins og það er orðað - frá Rússlandi með 400 milljónir Bandaríkjadala í vasanum. Er vísað til sölu á Bravó verksmiðjunni til Heiniken, en fyrir afraksturinn gátu feðgarnir og Magnús byggt upp veldi sitt. Með greininni, sem hefur undirfyrirsögnina "bjór með blóðbragði" er síðan birt stór mynd af Björgólfi Thor - sem eins og kunnugt er hefur komist á lista yfir ríkustu menn heims. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga segir að greinin í Ekstrabladet gefi ekki tilefni til andsvara eða aðgerða.
Mest lesið Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Líkamsárás í farþegaskipi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Fleiri fréttir Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Sjá meira