Níu tennur fórnarkostnaður nauðgunar 30. október 2006 17:57
Níu tennur voru brotnar í fyrrverandi lögreglumanni sem reyndi að bjarga eiginkonu sinni þegar hópur manna gerði tilraun til að nauðga henni inni á salerni skemmtistaðar í miðborginni aðfaranótt sunnudags. Mönnunum var sleppt eftir yfirheyrslur. Veitingastjóri staðarins segir að efla þurfi sýnilega löggæslu í miðbænum um helgar til að sporna gegn ofbeldi. Maðurinn sagði fréttastofu Stöðvar tvö að hjónin hefðu borðað kvöldverð í miðbænum á laugardagskvöldið. Klukkan rúmlega eitt fóru þau á veitingastaðinn Café Victor og þurfti konan að fara á salerni fljótlega eftir það. Þegar manninn fór að lengja eftir henni gekk hann inn á salernið, en lásinn var brotinn þegar konan fór þar inn svo aðgengi var mjög auðvelt. Þar sá hann fjóra menn sem héldu eiginkonu hans nauðugri, en hún grét eftir hjálp. Maðurinn réðist inn í hópinn þar sem mennirnir fjórir létu ótal högg dynja á honum, bæði með hnefum og hnjám. Þeir fóru ekki fyrr en aðrir gestir komu inn á salernið. Maðurinn var meðvitundarlaus þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn en rankaði við sér þegar hann var borinn út. Maðurinn er með töluverða áverka í andliti, átta spor í gegnum vörina og níu brotnar tennur. Þá er hann marinn víða um líkamann. Eiginkona mannsins er einnig marin víða á líkamanum, mest þó á handleggjum. Baldur Guðmundsson veitingastjóri Café Victors segir að salernin séu ekki undir stöðugu eftirliti, en séu hluti af svokölluðum dyravarðarrúnti sem farinn er með stuttu millibili. Hann segir að lásinn á salerninu hafi verið brotinn fyrr um kvöldið og ekki hafi skapast tækifæri til að gera við hann. Lögreglan kom fljótt á vettvang og lokaði staðnum. Tíu manns voru handteknir og færðir til yfirheyrslu á lögreglustöð. Baldur segir skemmtistaði í heild sinni þurfi að koma sér upp verklagsreglum til að auka eftirlit á salernum og til greina komi að ráða klósettverði. Þá segir Baldur mikilvægt að löggæsla verði sýnilegri í miðbænum um helgar. Hinir meintu árásarmenn voru fjórir talsins. Þeir eru frá Litháen og Póllandi en eru búsettir hér á landi. Mönnunum var sleppt eftir yfirheyrslur í gær.
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Innlent Fleiri fréttir Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Sjá meira