Pattstaða í viðræðum um hlut borgarinnar í Landsvirkjun 12. janúar 2006 23:30 MYND/Vísir
Pattstaða er í viðræðum ríkisins við Reykjavíkurborg og kaup ríkisins á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Viðræðum um málið hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna deilu um verðmat á fyrirtækinu. Viljayfirlýsing um sölu á hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrar í Landsvirkjun til ríkisins var undirrituð 17. febrúar í fyrra. Síðastliðið vor hófust svo samningaviðræður um hugsanlegt kaupverð og átti þeim að vera lokið fyrir árslok. Hins vegar hafa deilur um kaupverðið leitt til þess að málið er enn óleyst. Gerð var grein fyrir stöðu viðræðnanna á borgarráðsfundi í dag og þar töldu fulltrúar allra lista í borgarstjórn að fyrirliggjandi verðmat á Landsvirkjun væri óviðunandi. Fyrirtækið er metið á um 56 milljarða króna og á borgin um 45 prósent í því en Akureyrarbær um fimm prósent. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir þrátt fyrir þettaað áfram sé stefnt að því að borgin fari út úr fyrirtækinu. Þessari viðræðulotu sé lokið í bili en svo eigi menn eftir að ákveða hvenær næsta lota hefjist. Það sé ómögulegt að segja hvenær það verði. Aðspurð segir Steinunn Valdís að Reykjavíkurborg sé búin að afgreiða málið fyrir sitt leyti. Verðið sem liggi á borðinu sé einfaldlega of lágt og hún telji ekki rétt að selja hlutinn á því verði. Borgin verði líka að velja sölutímann sjálf. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja að ekki sé samstaða innan meirihlutans í borgarstjórn að selja eignarhlut borgarinnar, en Vinstri - grænir eru algerlega andvígir einkavæðingu Landsvirkjunar eins og ríkisstjórnin hafi lýst yfir vilja til að gera þegar hún eignast fyrirtækið. Meirihluti borgarráðs leggur áherslu á samfélagslegt eignarhald orkufyrirtækja í bókun sinni í dag. Steinunn Valdís segir að þetta hafi verið dregið fam til þess að varpa ljósi á það að það sé í raun og veru ekki Reykjavíkurborg sem breyti forsendum í viðræðunum heldur telji borgaryfirvöld að yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar hafi verið óheppilegar og ótímabærar og hafi truflað viðræðuferlið. Það sé yfirlýst stefna borgaryfirvalda að Orkuveita Reykjavíkur í samfélagslegri eigu allra borgarbúa. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið fer með málið fyrir ríkið og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra segist ekki vilja tjá sig um málið að sinni þar sem hún hafi fengið erindi frá borgarstjórn um að viðræðum hafi verið slitið.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira