Rektor segist ekki vera að forðast málssókn 12. janúar 2006 19:37
Háskólarektor hafnar því að hann sé að forðast málssókn með því að bjóða Steinunni Kristjánsdóttur fornleifafræðingi starf. Atvinnutilboðið kom stuttu eftir að Steinunn tilkynnti að hún myndi leita réttar síns gagnvart skólanum vegna ráðningar í aðra stöðu. Tveir sóttu um stöðu lektors í fonleifafræði við Háskóla Íslands, Gavin Lucas og Steinunn Kristjánsdóttir. Dómnefnd var skipuð til að meta umsóknir. Formaður hennar var Orri Vésteinsson lektor í fornleifafræði og stjórnarmaður í Fornleifastofnun Íslands, einkafyrirtæki sem annast fornleifarannsóknir. Annar umsækjendanna, Gavin Lucas, starfar hjá fyrirtækinu samkvæmt upplýsingum á heimasíðu þess. Dómnefnd mat báða umsækjendur hæfa og í framhaldinu kaus sagnfræðiskor að Steinunn yrði ráðin á grundvelli álitsins. Næst fór málið samkvæmt heimildum NFS inn á deildarfund hugvísindadeildar þar sem Orri Vésteinsson tók til máls og mælti sterklega með að áliti sagnfræðiskors yrði hafnað og Gavin Lucas ráðin í stað Steinunnar. Þetta samþykkti fundurinn og var ráðning Gavin loks staðfest af Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskólans. Eftir að Steinunn lét í ljós óánægju sína og lýsti því að hún myndi höfða mál á hendur Háskólanum vegna brota á stjórnsýslu- og jafnréttislögum, vegna tengsla Gavins og Orra auk þess að umsækjendur hafi verið jafn hæfir og því hafi átt að ráða konu í starfið. Steinunn staðfesti við NFS í dag að hún hefði íhugað að fara í mál við Háskólann. Kristín Ingólfsdóttir rektor segir að mat hafi verið gert á hæfi Orra og það staðist reglur skólans. Hún vísar því sömuleiðis á bug að hæfi þeirra hafi verið jafnt og vísar þar í deildarfundinn umrædda. Þrátt fyrir þetta hefur rektor séð ástæðu til - eftir að Steinunn gerði sínar athugasemdir - að bjóða henni nýtt starf án auglýsinga sem rektor telur vera heimilt samkvæmt reglum skólans um samstarf við aðrar stofnarnir. Hún segir að með því sé hún þó alls ekki að friða Steinunni og koma í veg fyrir málssókn.
Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira