Íslendingar láta ekki fuglaflensu trufla fyrirhugaðar sólarlandaferðir 12. janúar 2006 09:00 Tyrkland MYND/AP
Á sama tíma og fréttir berast af fuglaflensutilfellum í mönnum í Tyrklandi er ekkert lát á bókunum hér á Íslandi á sólarlandaferðum til Tyrklands í sumar. Þrjú systkini létust úr fuglaflensu í Tyrklandi í síðustu viku og matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur varað við að fuglaflensa geti orðið landlæg í Tyrklandi. Íslendingar virðist hins vegar ekki láta fréttir af fuglaflensu á sig fá þegar kemur að því að bóka sólarlandaferðir fyrir sumarið. Salan á ferðum til Tyrklands hjá Úrval Útsýn hófst fyrir fullt og allt um áramótin og þegar hafa 1.500 sæti verið bókuð. Helgi Eysteinsson markaðsstjóri hjá Úrval Útsýn segir að sala á ferðum hafi gengið vel í vikunni og að þeir sem hafi keypt sér ferðir út virðist ekki hafa áhyggjur af fuglaflensu. Helgi segir að það séu aðallega fjölmiðar sem hringi í þá vegna málsins en flestir þeir sem hafi bókað sér ferðir telji ekki þörf á að hafa áhyggjur að svo stöddu. Landlæknisembættið mælir ekki gegn ferðum til Tyrklands að sögn Haraldar Briem sóttvarnarlæknis. Ekki er talið að ferðamenn séu í hættu þar sem engin merki eru um að fuglaflensa berist á milli manna. Á heimasíðu Landlæknisembættisins er fólki sem er á ferð um svæði þar sem fuglaflensa hefur komið upp meðal annars bent á að forðast að komast í snertingu við lifandi hænsfugla og villta fugla. Einnig að borða ekki ósoðið eða illa soðið fuglakjöt eða egg. Helgi segir að ef svo farið að mælt verði með ferðatakmörkunum til Tyrklands þá verði komið til móts við þá sem hafi bókað ferðir. Þeim verði þá endurgreiddur sá kostnaður sem þeir hafi lagt út og reynt að selja þeim aðrar ferðir í staðin.
Fréttir Innlent Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira