Innlent

Sútað fiskroð gefur vel í aðra hönd

Sútað fiskroð með merkinu Nike eða Prada gefur vel í aðra hönd. Rekstrargrundvöllur fyrirtækisins Sjávarleðurs hf. á Sauðárkróki virðist tryggur og í fyrsta sinn frá stofnun þess árið 1995 er það farið að skila hagnaði.

Í gamla Loðskinnshúsinu á Sauðárkróki fer fram sútun og litun fiskroðs sem hefur vakið athygli sumra þekktustu tískuhúsa heims. Gunnsteinn Björnsson, framkvæmdastjóri Sjávarleðurs hf., segir að hópur viðskiptavina fyrirtækisins sé dreifðari en áður sem veiti meira öryggi í rekstrinum. Veltan í fyrra hafi numið 50 milljónum króna og verði meiri í ár en 7 starfi hjá Sjávarleðri að jafnaði. 

Fiskleðrið er af laxi, hlýra og innfluttum Nílarkarfa, og tilraunir með þorskleður vekja góðar vonir. Laxaroðið er eftir sútun sterkara en annað leður af sömu þykkt. Sjávarleður hf. keppir á sama markaði og þeir sem selja snáka- og krókódílaskinn, en munurinn er sá að roðið er ekki af dýrategundum sem kunna að vera í útrýmingarhættu.

Gunnsteinn segir fiskleðrið vera dýrt enda sé það fyrst og fremst hugsað sem munaðarvara.

Gunnsteinn Björnsson er einn af stærstu eigendum hlutafélagsins ásamt Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, Norðurströnd á Dalvík, sveitarfélaginu Skagafirði, eignarhaldsfélaginu Stökum á Akureyri og fleirum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×